FIDE birti alþjóðleg skákstig 1. september síðastliðinn. Landsliðskonurnar áttu góðan undirbúningsmánuð fyrir Ól en Dagur Sverrisson hækkaði mest.
Stigahæstu skákmenn og konur
Vignir Vatnar Stefánsson (2531) hækkaði um 2 stig í mánuðinum en litlar breytingar voru hjá 20 efstu mönnum.
Lenka Ptácníková (2082) er stigahæst skákkvenna en hún hækkaði um 19 stig í mánuðinum sem almennt var góður hjá landsliðskonum.

Ungir og gamlir
Benedikt Briem (2239) er stigahæstur ungra skákmanna en Josef Omarsson (2105) jafnaði Markús Orra Óskarsson (2105) í öðru sætinu með góðum ágústmánuði
Héðinn Steingrímsson (2485) er stigahæstur á vizkualdrinum.

Breytingar
Dagur Sverrisson (1689) hækkaði mest í mánuðinum en hann náði sér í 141 stig. Af stigahærri skákmönnum má benda á 52 stiga hækkun Benedikts Þórissonar (2071)

Fjöldi
Stigahæsti skákmaður landsins sýnir gott fordæmi og leiðir listann ásamt Emelíu Sigurðardóttur með 19 skákir, einni meira en mæðginin, Adam, Josef og Lenka.

Nýir á lista
5 nýir koma inn á lista í mánuðinum. Stigahæstur þeirra er Nicola Lolli sem náði sér í stig á móti í Barcelona í mánuðinum en hann er skráður í Vinaskákfélagið.











