Íslensku liðið í opna flokknum á 46. Ólympíuskákmótinu hefur byrjað ansi vel og unnið báðar viðureignir sínar 4-0 og sitja í efsta sæti ásamt fjórum öðrum þjóðum. Tap varð niðurstaðan í kvennaflokki gegn Ítölum með minnsta mun 1,5-2,5. Róðurinn þyngist á morgun í opna flokknum þegar liðið mætir sterkri tékkneskri sveit.
Opinn flokkur: Guatemala – Ísland
Andstæðingur dagsins var sveit frá mið-Ameríku með blöndu af ungum og efnilegum strákum og eldri reyndari meisturum. Helgi liðsstjóri ákvað að breyta ekki vinningsliðinu úr fyrstu umferð og Guðmundur hvíldi.
Jóhann setti tóninn á 3. borði en hann lagði ungan pjakk að velli sem geislaði af sjálstrausti. Það dugði ekki til gegn kóngsindverjanum og reynslunni, Jóhann pakkaði drengum saman og mátaði hann í lokin!
Hannes fygdi fljótt á eftir en hann hreinlega ýtti andstæðing sínum útaf borðinu stöðulega, sterk byrjun hjá Hannesi. Athugið að í 12. leik drap svartur á a8 en staðan lagast aftur eftir Db7, týpísk villa sem getur komið upp á DGT borðum.
Vignir kláraði sinn andstæðing, var aldrei með verra með svart og sýndi styrkleikamuninn jafnt og þétt.
Skákin hjá Hilmi var sú lengst en aldrei í hættu! Hilmir vann snemma peð og hafði auk þess stöðuyfirburði og skilaði vinningnum í hús.

Kvennaflokkur: Ísland – Ítalía
Kvennalið Íslands mætti Ítalíu. Hrund Hauksdóttir hvíldi. Ítalír hvíldu efsta borðið sem kom eilítið á óvart þar sem við höfum yfirleitt náð að stríða þeim og rífa af þeim vinninga.
Viðureignin fór ekki vel af stað að þessu sinni. Iðunn gerði stór mistök í útreikningum í krítískri stöðu, rétti leikurinn hefði þýtt tvísýn skák en gerður leikur var einfaldlega tapað tafl.
Lenka tapaði líka með hvítu í 24 leikjum sem gerir róðurinn ansi erfiðann gegn sveit sem er 130-200 stigum hærri á öllum borðum. Staðan orðin 0-2.
Guðrún Fanney Briem minnkaði muninn fyrir íslenska liðið. Ágætlega heppnaður undirbúningur tryggði fína stöðu og Guðrún fann skemmtilega leið til að vinna peð og í kjölfarið tefldi sú ítalska ekki vel og fór hratt niður í logum.
Hallgerður eygði smá von á að eiga séns á að tefla til vinnings eftir að hafa unnið vel úr svörtu mönnunum í Caro-Kann. Sú ítalska fann þráskák í lokin og því fór sem fór, tap með minnsta mun.
Tap niðurstaðan en gegn sterkri sveit sem var mun stigahærri á öllum borðum. Næst á dagskrá er Timor-Leste sem á að vera skyldupunktur fyrir liðið.
Umferðir íslensku liðanna hefjast klukkan 10:00 að íslenskum tíma.
Ólympíu-tenglar!
- Tengill sem á að virka í hverri umferð: Beinn tengill á skákir Íslendinga á 8by8verse
- Skákir á lichess (þarf að velja rétt umferð og flokk) : Lichess beint
- Opinber heimasíða mótsins: chessolympiad2026.fide.com
- Pörun og staða, opinn flokkur: chess-results.com – Open
- Pörun og staða, kvennaflokkur: chess-results.com – Women
- Bein útsending FIDE á YouTube: youtube.com/@FIDE_chess/streams
- Chess.com-síða mótsins: 2026 FIDE Chess Olympiad
- Íslenskar fréttir og viðtöl við farana: skak.is og flokkurinn Ólympíufarinn
- INSTAGRAM síða Skáksambandsins (Story o.f.l.) : Instagram
- Yfirlit á Wikipedia: 46th Chess Olympiad
Skýrendur FIDE eru meðal annars Peter Svidler, Cristian Chirila og Shahzod Vakhidov. Allar umferðir eru í beinni útsendingu án endurgjalds.
Um Ólympíuskákmótið:
46. Ólympíuskákmótið fer fram í Samarkand í Úzbekistan 15-27. september. Tefldar eru 11. umferðir þar sem tímamörk eru 90 mínútur fyrir 40 leiki, síðan 30 mínútur til viðbótar, 30 sekúndur fást per leik frá fyrsta leik. Lið fær 2 stig fyrir sigur í viðureign og 1 stig fyrir jafntefli. Eftir 11 umferðir ræður stigafjöldi liða en oddastig skera úr um ef lið eru jöfn og þá skiptir vinningafjöldi máli.
Ísland sendir bæði lið í opinn og kvennaflokk. Liðið er í 48. sæti á styrkleikalistanum með meðalstigin 2455. Kvennalið Íslands er í 80. sæti með meðalstigin 1953. Liðsstjóri opna flokksins er GM Helgi Ólafsson, sem er að mæta á sitt 21. ólympíuskákmót. Liðsstjóri kvennaliðsins er FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson.
Bandaríkin er stigahæstir í opna flokknum (meðalstig 2753), Ólympíumeistarar Indlands í öðru sæti sem tvöfaldir meistarar frá Búdapest 2024 og heimalandið Úsbekistan í þriðja. Indland er efst í kvennaflokki. Alls taka þátt um 400 lið sem er met. Þar á meðal Græland sem teflir í fyrsta skipti















