Gauti Páll, Dagur, Helen Hekla, Tauras, Jón Fenrir.

Skáksveit Vesturbæjarskóla heldur af stað í leiðangur til Tsaghkadzor í Armeníu á morgun. Á þriðjudagin hefjast Evrópuundanrásir heimsmeistaramótsins í skólaskák. Þetta er viðburður sem hinn nýi forseti Fide, Timor Turlov, stendur á bakvið í samstarfi við armenska og evrópska skáksambandið.

Sveitin er svona skipuð:

  1. borð: Dagur Sverrisson
  2. borð: Jón Fenrir Ragnarsson
  3. borð: Tauras Nareika
  4. borð: Helen Hekla Priet Eysteinsdóttir

Liðsstjóri er Gauti Páll Jónsson.

Dagskrá mótsins:

Hægt verður að fylgjast með mótinu á chess-results.

Í upphafsröð er Vesturbæjarskóli skráð nr. 26 af 27 skólum. Vesturbæjarskóli sendir eitt yngsta liðið til keppni í mótinu.

Heimasíða mótsins.

- Auglýsing -