Hátt í 200 börn fylltu Miðgarð í Garðabæ í gær til að keppa um Íslandsmeistaratitla barna og unglingasveita.

1.-3. bekkur

9 lið voru skráð til leiks og tefldu þau 5 umferðir. Hörkuspenna var milli A sveita KR og Taflfélags Reykjavíkur. Að lokum enduðu bæði lið með 17 vinninga en KR vann innbyrðis viðureign liðanna og hlaut því Íslandsmeistaratitilinn. A sveit Taflfélags Garðabæjar endaði í þriðja sæti.

Sigursveit KR skipuðu Jón Fenrir Ragnarsson, Dalmar Bragi Aronsson, Theodór Nóel Schram og Ari Hrafn Briem.

4. – 7. bekkur

Í þessum flokki voru 18 sveitir skráðar til leiks og tefldu þær 7 umferðir. Snemma varð ljóst að A sveit Taflfélags Reykjavíkur væri sterkust en hún náði í 23 vinninga af 28. A sveit KR og og A sveit Hauka voru jafnar að vinningum með 19,5 í öðru og þriðja sæti, en KR fékk fleiri stig og endaði því í öðru sæti.

Sigursveit TR skipuðu Dagur Sverrisson, Eiður Jökulsson, Gunnar Þór Þórhallsson og Garðar Hrafn Einarsson.

Opinn flokkur
Í opna flokknum kepptu 9 sveitir en þær tefldu 9 umferðir, allar við allar. Tvær sveitir, TR-A og Fjölnir-A báru af í mótinu og töpuðu varla skák þangað til þær mættust í lokaumferðinni. Fyrir hana voru sveitirnar með jafn marga vinninga og jafn mörg stig. TR fékk snemma aðeins betri stöðu á öllum borðum en liðsmenn Fjölnis neituðu að gefast upp og virtust á tímabili ætla að ná kreista fram jafntefli. Það náðist á tveim borðum en TR vann á hinum tveim og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Sveit Breiðablik endaði í þriðja sæti.

Sigursveit TR skipuðu Josef Omarsson, Haukur Víðis Leósson, Pétur Úlfar Ernisson og Jónatan Leó Daðason.

Úrslit úr mótinu má finna hér (Einstaklingsúrslit koma inn á næstu dögum)

Mörg hundruð myndir af mótinu má finna á FLICKR síðu skáksambandsins.

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn