Helgi Áss Grétarsson hóf Benidorm Chess Open 2026 vel í gær og vann skák sína í fyrstu umferð mótsins sem hófst á Spáni í gær. Helgi hafði þó heppnina með sér en hann gaf kost á kraftaverkabjörgun í lok skákarinnar sem andstæðingurinn missti af!

Helgi er með 2405 Elo-stig og er fjórði í styrkleikaröð A-flokksins. Fyrir ofan hann eru rúmenski stórmeistarinn Felix-Antonio Ilinca (2507), Norðmaðurinn Kristian Stuvik Holm (2500) og Indverjinn Lalit Babu M R (2489).

Benidorm Chess Open fer fram dagana 25. október til 1. nóvember á Hotel Meliá Benidorm. Tefldar eru níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörkin 90 mínútur á skákina auk 30 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Mótið er FIDE-reiknað og gefur möguleika á alþjóðlegum áföngum.

Mótinu er skipt í tvo meginflokka. Open A er ætlaður skákmönnum með yfir 1800 Elo-stig en Open B er fyrir keppendur undir 2000 stigum. Heildarverðlaunafé mótshátíðarinnar er rúmlega 25 þúsund evrur.

Helgi teflir að sjálfsögðu í sterkari flokknum og er einn af fjórum stigahæstu keppendum mótsins.

Tvöföld umferð á þriðjudag

Fyrsta umferðin fór fram í gær 25. október en önnur umferð hófst nú rétt áðan. Helgi teflir þar með svörtu gegn Rúmenanum Sebastian-Ionut Pavel (2153).

Dagskrá mótsins er þétt:

  • 25. október kl. 17:30 – 1. umferð
  • 26. október kl. 16:30 – 2. umferð
  • 27. október kl. 10:00 – 3. umferð
  • 27. október kl. 16:30 – 4. umferð
  • 28. október kl. 16:30 – 5. umferð
  • 29. október kl. 16:30 – 6. umferð
  • 30. október kl. 16:30 – 7. umferð
  • 31. október kl. 16:30 – 8. umferð
  • 1. nóvember kl. 9:30 – 9. og síðasta umferð

Helgi vann sem fyrr segir fyrstu skák sína en lokin voru skemmtileg!

Helgi hafði yfirspilað andstæðing sinn en síðasti leikur 49…h3?? missti unna stöðu í jafntefli ef hvítur hefði fundið 49.Hxg6+! Dxg6 50.Dg7+!! og hvítur er patt í næsta leik!

Helgi hefur verið duglegur að tefla undanfarið og verður fróðlegt að fylgjast með hvort hann nái að blanda sér í toppbaráttuna í Benidorm.

Hægt er að fylgjast með beinum útsendingum frá mótinu á Lichess, auk þess sem skákirnar eru sýndar á Chess.com og ChessBase. Úrslit og stöðu má nálgast hér.

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn