Skipuleggjendur Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótsins munu bjóða upp á rútuferð frá Reykjavík-Mývatnssveit og til baka fyrir keppendur. Verð á mann, fram og til baka, verður 15.000 kr. (sama verð óháð aldri). Önnur leið: 7.500 kr.
Rútan leggur af stað frá BSÍ í Reykjavík klukkan 9:00 þann 19. nóvember. Rútan bíður ekki. Það er 7-8 klukkustunda akstur að Skjóbrekku / Sel Hótel / Skútustaði Gistiheimilinu, með stoppum. Þannig að rútan ætti þá að koma eigi síðar en klukkan 17:00 að Skjóbrekku / Sel Hótel / Skútustaði Gistiheimilinu, eða tveimur klukkustundum fyrir upphaf 1. umferðar.
Rútan fer síðan um klukkan 15:00 frá Skjóbrekku / Sel Hotel / Skútustaði Gistiheimilið sunnudaginn 22. nóvember. Áætluð koma rútunnar til BSÍ Reykjavík er um klukkan 22:00 á sunnudagskvöldi 22. nóvember.
Rútan er með ókeypis internettengingu. Hámark 18 manns í rútunni. Ef fleiri en það óska eftir fari með rútinni verður stærri rúta útveguð.
Rútan getur tekið upp skákmenn á leiðinni á mótsstaðinn. Þeir sem óska eftir því eða meiri upplýsingum geta hringt í Hermann í síma 8213187.
Einunigs þeir sem hafa greitt fyrirfram fyrir ferðina fá pláss. Síðasti möguleiki á því að bóka og borga fyrir rútferðina er á hádegi miðvikudaginn 18. nóvember
Nú eru 31 keppendur skráðir til leiks á mótið. Því miður er allt gistipláss uppbókað í göngufæri við mótsstað, en nægt framboð er á gistinu í Mývatnssveit og er td. Hótel Laxá í 3,5 km fjarlægð, þar sem næg framboð er herbergjum. Hægt er að skoða td. Visit Mývatn til að athuga með gistingu.

















