Íslandsmeistari Helgi Áss með gripi góða eftir verðskuldaðan sigur á Skákþingi Íslands 2024. — Ljósmynd/SÍ

Helgi Áss Grétarsson byrjar Benidorm Chess Open 2026 af fítonskrafti og hefur fjóra vinninga að loknum fjórum umferðum! Helgi sterkur í gær á tvöföldum degi og hefur tyllt sér í efsta sætið. Rúmenski stórmeistarinn Felix-Antonio Ilinca hefur einnig fullt hús og mætast þeir í fimmtu umferðinni í dag.

Í 3. umferðinni lagði Helgi FIDE-meistara frá Andorra að velli í rétt rúmlega 80-leikja svíðingi. Slökkviliðsmenn eru enn í að vinna í að kæfa niður brunalyktina!

Í fjórðu umferðinni, seinni skák gærdagsins, setti Helgi allan þungann á borðið með hvítu. Andstæðingur Helga réði ekki neitt við neitt og var ýtt út af borðinu!

Helgi hefur svart gegn rúmenska stórmeistaranum í dag og heldur vonandi áfram góðu gengi sínu!

Um mótið:

Helgi er með 2405 Elo-stig og er fjórði í styrkleikaröð A-flokksins. Fyrir ofan hann eru rúmenski stórmeistarinn Felix-Antonio Ilinca (2507), Norðmaðurinn Kristian Stuvik Holm (2500) og Indverjinn Lalit Babu M R (2489).

Benidorm Chess Open fer fram dagana 25. október til 1. nóvember á Hotel Meliá Benidorm. Tefldar eru níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörkin 90 mínútur á skákina auk 30 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Mótið er FIDE-reiknað og gefur möguleika á alþjóðlegum áföngum.

Mótinu er skipt í tvo meginflokka. Open A er ætlaður skákmönnum með yfir 1800 Elo-stig en Open B er fyrir keppendur undir 2000 stigum. Heildarverðlaunafé mótshátíðarinnar er rúmlega 25 þúsund evrur.

Helgi teflir að sjálfsögðu í sterkari flokknum og er einn af fjórum stigahæstu keppendum mótsins.

Fyrsta umferðin fór fram í gær 25. október en önnur umferð hófst nú rétt áðan.

Dagskrá mótsins er þétt:

  • 25. október kl. 17:30 – 1. umferð
  • 26. október kl. 16:30 – 2. umferð
  • 27. október kl. 10:00 – 3. umferð
  • 27. október kl. 16:30 – 4. umferð
  • 28. október kl. 16:30 – 5. umferð
  • 29. október kl. 16:30 – 6. umferð
  • 30. október kl. 16:30 – 7. umferð
  • 31. október kl. 16:30 – 8. umferð
  • 1. nóvember kl. 9:30 – 9. og síðasta umferð

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn