FIDE birti ný alþjóðleg skákstig 1. nóvember. Október var mikill kappskákmánuður enda bæði keppt á Íslandsmóti skákfélaga og EM taflfélaga.
Stigahæstu skákmenn og konur
Vignir Vatnar Stefánsson (2510) er stigahæstur íslenskra skákmanna þrátt fyrir smá lækkun í október. Olga Prudnykova (2274) er stigahæst skákkvenna.
Ungir og gamlir
Josef Omarsson (2260) fylgdi eftir sterkum septembermánuði með 23 stiga hækkun í október og er orðinn stigahæstur Íslendinga 20 ára og yngri. Mánuðurinn var annars mjög öflugur hjá mörgum ungum skákmönnum og má sjá margar 20-60 stiga hækkanir.
Á vizkualdrinum er Héðinn Steingrímsson (2485) enn hæstur. Henrik Danielsson (2472) færðist þó nær honum með 6 stiga hækkun.
Hækkun
Pétur Úlfar Ernisson (1944) hækkaði mest í mánuðinum, stigi meira en Örvar Hólm Brynjarsson (1888). Áhugavert er að sjá sterka 53 stiga hækkun hjá Stephan Briem (2207)
Fjöldi
20 Íslendingar tefldu 11 kappskákir eða fleiri í mánuðinum. Verðandi titilhafinn Sigurbjörn Hermannsson (1962) átti flestar eða 14 talsins.
Nýir á lista
6 nýir skákmenn komu inn á lista eftir mánuðinn. Stigahæstur þeirra er Pétur Sævarsson með 2051 stig.

















