Sjöunda umferð Heimsmeistaramóts öldunga í skák í Vrnjačka Banja í Serbíu var tefld í dag. Íslensku keppendurnir áttu heilt yfir ekki góðan dag. Tvö jafntefli komu í hús með erfiðismunum í 50+ flokknum en báðar skákirnar töpuðust í 65+ flokki kvenna.
Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)

Hannes hafði svart gegn Kazakanum Petro Kostenko og var gjörsamlega kominn í kaðlana strax í byrjun skákar. Hannes sýndi þó seiglu og gaf sig ekkert þrátt fyrir krefjandi vörn og hafði að lokum jafntefli með erfiðismunum.
Hannes hefur 5 vinninga eftir þetta jafntefli.
Henrik Danielsen tefldi gegn Jacob Sylvan, dönskum IM. Skákin fór aldrei á mikið flug og jafntefli samið í miðtaflinu.
Henrik hefur 4 vinninga.
- GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
- GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.
Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).
Konur 65+ (29 keppendur)
Guðlaug tapaði sinni skák rúmenskri skákkonu og virtist hreinlega hafa verið slegin skákblindu í miðtaflinu og tapar skipamun.
Sigurlaug tapaði sinni skák gegn skákkonu með hið skemmtilega nafn, Music!
Gauðlaug hefur 3 vinninga og Sigurlaug hefur 2,5 vinning.
- WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
- Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.
Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!
Úrslit 7. umferðar:
Pörun 8. umferðar:

Hannes og Henrik verða í beinni útsendingu og teflt verður á hverjum degi til loka móts, frídagurinn að baki.
Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna.
Tenglasafn
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results – Íslendingar
- Opinn 50+ – chess-results
- Konur 65+ – chess-results
- Beinar útsendingar á Lichess



















