Nóvember-skákmót Skákfélags Mosfellsbæjar verður haldið laugardaginn n.k. 21. nóvember kl. 12:30 í Fiskabúrinu í Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2. Mótið er opið skákfólki á öllum aldri og áætlað er að því ljúki um kl. 14:30.

Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 4+3. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Á staðnum verður frítt gæðakaffi í boði bókasafnsins.

Endilega skráið ykkur sem fyrst.

Þátttökugjöld

  • Félagsmenn Skákfélags Mosfellsbæjar tefla ókeypis.
  • Utanfélagsmenn 18 ára og eldri greiða 1.000 kr.
  • Utanfélagsmenn 17 ára og yngri greiða 500 kr.
Rn. 0133-26-022776
Kt. 521225-0680

Skráning hér

Sigurvegarar fyrri móta

  • Febrúarmót – Gauti Páll Jónsson
  • Marsmót – Rögnvaldur Jónsson
  • Aprílmót – Gauti Páll Jónsson
  • Maímót – Daníel Hákon Friðgeirsson
  • Septembermót – Örn Leó Jóhannsson
- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn