Úrslitaeinvígi Íslandsmóts Símans í netskák 2026 hefst í kvöld klukkan 18:00. Mótið fer fram á chess.com og er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands (RÍSÍ) í samstarfi við Skáksamband Íslands.

Í úrslitum er teflt 10 skákir (í stað 6 skáka sem tíðkast á fyrri stigum). Sá sem nær 5½ vinningi fyrst sigrar einvígið. Mótið er í útsláttarfyrirkomulagi og sigurvegari verður Íslandsmeistari í netskák 2026.

Skákskýringar
Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson og FIDE-meistarinn Birkir Ísak Jóhannsson sjá um skákskýringar á úrslitaeinvíginu.

Beinar útsendingar

Áhorfendur geta fylgst með einvíginu í beinni á eftirfarandi stöðum:

Verðlaun

  • 1. sæti: 125.000 kr.
  • 2. sæti: 75.000 kr.
  • 3. og 4. sæti: 25.000 kr. hvor

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn