Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson er orðinn einn efstur í Mývatnssveitinni á Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótinu. Vignir lagði Dag Ragnarsson að velli en þeir voru einir með fullt hús fyrir umferðina. Simon Williams og Ivan Schitco koma næstir, hálfum vinningi á eftir Vigni.
Vignir hafði svart gegn Degi og upp kom drottningarindversk vörn. Dagur fórnaði peði í miðtaflinu en virtist ekki fá nægjanlegar bætur. Vignir fékk betra tafl en missti aðeins tökin og miðtaflsbarningur var þó nokkur á kafla. Vignir náði loks að veikja kóngsvæng Dags og braust þar í gegn.
33.Ba6?? leyfir 33…Hh6 34.Kf1 Df3 35.Ke1 Hh2! og hvítum eru allar bjargir bannaðar.
Ivan lagði Davíð að velli í vel útfærðri skák á 2. borði og Simon vann gegn Lenku á 3. borði eftir að Lenka með svörtu fór í vægast sagt óhollt peðaát í byrjuninni!
9.Hxb4! og hvítur stendur þegar til vinnings 9…Dxb4 10.Rxd5!
Gauti náði að leggja stórmeistarinn Conquest að velli. Stuart var lengst af sínum ferli þekktur fyrir mikið tímahrak og það var tilfellið í dag og kostnaðurinn var mikill!
39…h5? var ekki bestur en eftir 40.gxh6 var 40…Kf8?? tapleikur og Gauti refsaði með 41.Hxe7! og Stuart féll með tapað tafl.
Stefán Steingrímur tefldi háklassa skák gegn Gerghönu. Stefán var vel undirbúinn í kóngsindverjanum og fékk betra tafl snemma auk tímaforskots. Stefán blés til sóknar af krafti og náði búlgörsku landsliðskonunni í mátnet.
Stefán missti þó af fallegu náðarhöggi hér en 39…Dxh3!! 40.Kxh3 Hh1+ 41.Kg3 h4# er mjög fallegt mát!
Skemmtilegur krókur á móti bragði var hjá Agli með svörtu gegn Robin.
47.Rf4!? rýfur leppunina á f-línunni 47…Hxf4 48.Dxf4 og hvítur er næstum að vinna drottninguna en Egill á 48…Bd3+ og fallegt mát eftir 49.Be2 Bxe2#
Skákir 4. umferðar á lichess:
Úrslit 4. umferðar:

Staðan:
Vignir einn með fullt hús.
Pörun 5. umferðar:
Vignir hefur hvítt gegn félaga sínum úr Blikum, Ivan Schitco og Gauti er kominn upp á svið!
Keppendalisti:

Upplýsingar um mótið:
Fimm stórmeistarar taka þátt í mótinu og fjórir alþjóðlegir meistarar. Keppendur koma frá fimm þjóðlöndum og eru af öllum styrkleikum. Sjá mótið á chess-results
Allar skákir mótsins verða í beinni á lichess.com
Nánari upplýsingar um mótið.
6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki og reiknað til kappskákstiga hjá FIDE.
Tímamörk
90 mínútur fyrir alla skákina með 30 sek viðbótartíma fyrir hvern leik frá og með fyrsta leik. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Dagskrá.
1 Umferð 19.11.2026 kl 19:00
2 Umferð 20.11.2026 kl 10:00
3 Umferð 20.11.2026 kl 16:00
4 Umferð 21.11.2026 kl 10:00
5 Umferð 21.11.2026 kl 16:00
6 Umferð 22.11.2026 kl 10:00
Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.
Yfirsetu reglur. (bye rules) Skákmönnum verður heimilt að taka tvisvar sinnum hálfs vinnings yfirsetu (bye) í umferðum 1-5, að því tilskildu að þeir gefi nægan fyrirvara. Með nægum fyrirvara telst hafa verið gefinn áður en öllum skákum er lokið í umferðinni á undan fyrirhugaðri yfirsetu umferð.
Verðlaun
1 sæti 150.000 kr
2 sæti 100.000 kr
3 sæti 50.000 kr
Verðlaunum verðu skipt verði keppendur jafnir að vinningum
Topp 65+ 25.000 kr (+/- 170 €)
Topp U-18 ára 25.000 kr
Topp U-1800 elo 25.000 kr
Topp stiglaus 25.000 kr
Heildarverðlaun: 400.000 kr ( +/- 2790 €)
Ef sérstakur U-2000 elo flokkur verður eru verðlaun þar fyrir 1. sætið 50.000 kr
Þátttökugjöld
kr. 10.000
kr. 7.000 fyrir 18 ára og yngri og stiglausa.



















