Skákþing Vestmannaeyja 2019 hófst 24. janúar sl. og fer fram í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9 Vestmannaeyjum. Keppendur eru átta – og verður tefld einföld umferð. Teflt verður á fimmtudögum kl. 20.00 og sunnudögum kl. 13.00 frestaðar skákir eða umferðir eftir atvikum. Umhugsunartími er 60 mín. + 30 sek á leik.
Reiknum með að mótinu verði lokið 24. febrúar 2019, tímalega fyrir Íslandsmót skákfélaga 2018-2019 sem verður haldið 1.-2. mars nk. en TV er með sveitir í 3ju og 4. deild.
Staðan eftir fjórar umferðir
Hallgrímur Steinsson er efstur með 3,5 vinninga og í 2.-3. sæti eru Sigurjón Þorkelsson og Stefán Gíslason með 3 vinninga og Einar Guðlaugsson með 2,5 vinninga. Skák Guðgeirs Jónssonar og Gísla Eiríkssonar úr 2. umf. frestað – en verður tefld 17. febr. nk.














