Rúnar Ísleifsson er efstur með fullt hús vinninga þegar aðeins tveim skákum er ólokið á Skákþingi Hugins á Húsavík. Rúnari nægir jafntefli gegn Hermanni Aðalsteinssyni í lokaumferðinni til að tryggja sér sigur í mótinu og meistartitil Hugins á Húsavík 2019 í leiðinni.
Hermann, sem á tvær skákir eftir gegn Ævari og Rúnari í lokaumferðinni, er sá eini sem getur náð Rúnari að vinningum vinni hann báðar skákirnar sem hann á eftir. Gangi það eftir verða þeir Rúnar og Hermann efstir og jafnir á mótinu og mun því stigaútreikningur skera úr um sigurvegarann. Ævar Ákason getur náð 4. sætinu vinni hann Hermann og Rúnar vinni Hermann í lokaumferðinni.
Staðan fyrir síðustu tvær skákirnar.
- Rúnar Ísleifsson 5 vinningar (1 skák eftir)
- Kristján Ingi Smárason 4 vinningar
- Smári Sigurðsson 4 vinningar
- Hermann Aðalsteinsson 3 vinningar (2 skákir eftir)
- Ævar Ákason 2 vinningar
- Sigurbjörn Ásmundsson 1 vinningur
- Sigurður Danelsson 0 (tefldi ekki vegna veikinda)
Athygli vekur góður árangur Kristjáns Inga Smárasonar sem er einungis 10 ára gamall. Kristján hefur lokið sínum skákum og er sem stendur í 2. sæti með 4 vinninga. Kristján tapaði aðeins einni skák gegn Rúnari, gerði tvö jafntefli og vann tvær skákir í mótinu. Aðeins Hermann getur komið í veg fyrir að Kristján Ingi haldi verðlaunasætinu í mótinu. Útlit er fyrir að lokaskákirnar fari fram á heimavelli Rúnars að Vöglum í Fnjóskadal um helgina.
Eins og fram hefur komið hér á síðunni teflir Kristján Ingi fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu í skólaskák sem fram fer í Borgarnesi um helgina. Óhætt er að segja að afar forvitnilegt verði að fylgjast með gengi hans á mótinu.














