Vignir Vatnar hrósaði sigri á Skákþingi Norðlendinga um helgina. Mynd: Sigurður Arnarson.

Skákþing Norðlendinga, hið 85. í röðinni, var háð á Akureyri nú um helgina. Vegna ófærðar og óveðurs var ákveðið að fresta upphafi mótsins frá föstudegi til laugardags og um leið þurfti að breyta fyrirkomulaginu. Eingöngu voru tefldar atskákir (tími 25-10), átta umferðir. Vignir Vatnar Stefánsson tók snemma forystuna í mótinu og lét hana aldrei af hendi; leyfði aðeins eitt jafntefli. Annar varð Bárður Örn Birkisson og Jón Kristinn Þorgeirsson varð í þriðja sæti. Hann varði þar með meistaratitil sinn frá því í fyrra.

Jón Kristinn varð skák- og hraðskákmeistari Norðlendinga 2019. Mynd: Sigurður Arnarson.

Efstu menn:

Vignir Vatnar Stefánsson    7,5

Bárður Örn Birkisson        7

Jón Kristinn Þorgeirsson    6,5

Áskell Örn Kárason, Símon Þórhallsson og Karl Egill Steingrímsson 4,5.

Kjörorð skákarinnar er Gens Una Sumus – við erum ein fjölskylda. Í þessari skák mætast eldsti og yngsti keppandi mótsins. Aldursmunurinn er 67 ár. Mynd: Sigurður Arnarson.

Benedikt Stefánsson fékk stigaverðlaun (besti stigaárangur keppanda með 1799 stig og minna) og Markús Orri Óskarsson varð Norðurlandsmeistari unglinga.

Sjá nánar á Chess-results 

Að venju fór Hraðskákmót Norðlendinga fram eftir að aðalmótinu lauk. Þar varði Jón Kristinn einnig titil sinn frá í fyrra. Efstu menn:

Jón Kristinn Þorgeirsson  7,5 af 9

Símon Þórhallsson         7

Rúnar Sigurpálsson og Tómas V. Sigurðarson 6,5

Áskell Örn Kárason       6

Af heimasíðu SA

- Auglýsing -