Bragi skákmeistari Ása 2019. Mynd: ESE

Hið árlega meistaramót skákklúbbs FEB fór fram í síðustu viku þar sem hinn góð- og valinkunni Bragi Halldórsson fór með glæsilegan sigur af hólmi.. Gamla kempan Gunnar Gunnarsson varð annar  og Björgvin Víglundsson þriðji, Ögmundur Kristinsson fjórði. Sæbjörn Larsen svo fimmti með 6.5 vinning. Hinir þrír síðastnefndu hafa allir hampað nafnbótinni áður.

Jónas Ástráðsson, ritari klúbbsins, segir svo frá   á heimasíðu klúbbsins www.aesirasg.is

„Alls voru það 36 Æsir sem settust að tafli þriðjudaginn 19. mars sl. Nokkurra var saknað, sem áttu ekki heimangengt, en maður kom í manns stað. Bragi Halldórsson, hinn hægláti snillingur fór mikinn, gaf ekkert eftir og endaði Meistaramót Ása með fullt hús með 10 vinninga af 10 mögulegum.  Í öðru sæti var Gunnar Gunnarsson með 8.5 vinninga og þriðji Björgvin Víglundsson með 7.5 vinninga, hærri að stigum en Ögmundur Kristinsson með sama vinningafjölda.  Sæbjörn G. Larsen meistari síðasta árs var í 5. sæti með 6.5 vinninga en í kjölfar hans með 6 vinninga í 6.-9. sæti komu Þór Valtýsson, Guðfinnur Kjartansson, Sveinbjörn Jónsson og Ari Stefánsson

Aðrir hlutu færri vinninga en margir máttu þó vel við una því ekki var við meðalmenn að eiga. Æsir státa af öflugu félagsstarfi og mæting hjá þeim með miklum ágætum, hafa margir snillingar gengið í endurnýjaða lífdaga í góðum félagsskap áhugasamra skákmanna. 

Sem fyrr var formaður Ása, Garðar Guðmundsson, skákstjóri og fórst það vel úr hendi að vanda.“

Myndskreyting: ESE

Á morgun mætast Ásar á ný til sinna vikulegu skákskylminga í æfingaskyni því annan þriðjudag, 2. apríl nk.,  mætast stálin stinn á ný,  því þá verður teflt um Íslandsmeistaratitil öldunga 65 ára+ í atskák, sem hinn vígreifi Björgvin Víglundsson, hefur unnið í öll þau skipti sem um hann hefur verið keppt. Það eru skákklúbbar eldri skákmanna Æsir, Riddarinn og Korpúlfar, sem standa sameiginlega að mótinu með fulltingi SÍ.

ESE

- Auglýsing -