Hinn ungi og öflugi TR-ingur Gauti Páll Jónsson fór með sigur af hólmi á afar fjölmennu árdegismóti í KR-stofunni á laugardaginn var. Víkingurinn Ólafur B. Þórsson, vann mótið vikunni áður og KR-ingurinn Sigurður Áss Grétarsson, mótið þar á undan, þar sem Ólafur varð annar og Ögmundur Kristinsson (TR) þriðji, svo samkeppnin er hörð.
Á þriðja tug keppenda úr mörgum félögum eru farnir að taka daginn snemma til að hrista af sér slenið og tefla sér til afþreyingar og yndisauka.

En samt stíft til vinnings, rétt eins og líf liggi við eða stórkostleg orðsporsáhætta, enda birtast úrslitin á netinu og því sýnileg um allan heim fyrir áhugasama.
Ungstirnið Iðunn Helgadóttir, 11 ára yngismær, stóð sannarlega fyrir sínu á síðasta móti. Var mætt ásamt föður sínum til að spreyta sig gegn gömlum kempum og öðrum yngri. Sú stutta gerði sér lítið fyrir og krækti sér í 4 vinninga með góðri taflmennsku. Afar efnileg skákkona þar á ferð, sannkölluð vonarstjarna vandamanna.
Árdegismótin eru orðin fastur liður í skáklífinu, hafa unnið sér fastan sess á liðnum 5 árum. Þau eru farin að skáka kvöldmótunum á mánudögum hvað þátttöku varðar.
Telft er í KR allan ársins hring, á laugardögum kl. 10.30 – 13 og mánudögum kl. 19.30 – 22.30.
Mótin eru öllum opin og þátttökugjald kr. 500 en aðeins minna fyrir fastagesti. Heitt á könnunni.

ESE















