Freyja Birkisdóttir (1430) – Lykke-Merlot Helliesen (1601) 0-1
Batel Goitom Haile (1582) – Nancee Cheryl (1267) 1-0
Ásthildur Helgadóttir (1077) – Linnea Larre (1563) 0-1
Alva Ling Tran (1550) – Idunn Helgadóttir(1137) 1-0
Soffía Arndís Berndsen (1031) – Mathilde Bartels Fagan () 1-0
Zofia Izabella Marzec () – Anna Katarina Thoroddsen (1027) 1-0
Sarah Sima Derlich () – Karen Ólöf Gísladóttir () 0-1
Ekki voru úrslitin okkur nægilega hagstæð í 2. umferð. 2 vinningar af 7 í hús sem er talsvert undir væntingum fyrir umferðina.
Freyja tefldi við stigahæsta keppandann í flokknum og fékk mjög slæma stöðu eftir ónákvæman leik, tapaði liði og loks skákinni. Það er ljóst að ekkert má fara úrskeiðis á móti þeim sterkustu í flokknum.
Batel tefldi við hina ungu Nancee frá Danmörku sem er afar efnileg. Batel tefldi mjög örugglega, nýtti færin sín vel og kláraði skákina vel.
Ásthildur tefldi við hina norsku Linneu. Ásthildur lét plata sig aðeins eftir byrjunina og lenti í vandræðum en gerði vel að tapa aðeins 2 mönnum fyrir hrók og peð. Í framhaldinu gaf Ásthildur andstæðingnum peð til að reyna að ná mátsókn en það var of máttlaust til að ganga og staðan þá töpuð. Ásthildur tapaði svo skiptamun í framhaldinu og skákinni skömmu síðar.
Iðunn tefldi við hina sænsku Ölvu og tefldi ágætlega framan af en misreiknaði sig illa í miðtaflinu og tapaði manni. Það reyndist of mikið gegn svona reynslumikilli stelpu og sú sænska kláraði skákina örugglega.
Soffía tefldi við hina dönsku Mathilde og vann mjög örugglega. Soffía er klárlega miklu betri en þessi stelpa og vann auðveldlega.
Anna tefldi við hina dönsku Zofiu sem er frekar góð. Þetta var löng og erfið skák þar sem Anna hafði frumkvæðið lengst af en augnabliks hugsunarleysi í endataflinu kostaði hrók og skákina. Leiðinilegur endir á annars góðri skák hjá Önnu.
Karen tefldi við hina dönsku Söru og var það klárlega skrautlegasta skák umferðarinnar. Karen byrjaði mjög vel og var nánast að slátra þeirri dönsku en gekk ekki sem skildi að máta hana og tapaði 2 mönnum við það en var enn með gjörunna stöðu. þetta hafði þó slæm áhrif á sjálfstraustið og einbeitinguna. Karen lék svo af sér hrók í framhaldinu og tapaði því skákinni slysalega. Það getur verið erfitt að tefla á sínu fyrsta Norðurlandamóti. Karen kemur örugglega til baka í næstu skákum og sýnir hvað hún getur.
Í þriðju umferð eru eftirfarandi viðureignir hjá stelpunum okkar:
Linnea Larre (1563) – Batel Goitom Haile (1582)
Amelia Nordquelle (1568) – Soffía Arndís Berndsen (1031)
Clara Heiberg () – Freyja Birkisdóttir (1430)
Idunn Helgadóttir(1137) – Zofia Izabella Marzec ()
Leia Andries () – Ásthildur Helgadóttir (1077)
Anna Katarina Thoroddsen (1027) – Mathilde Bartels Fagan ()
Karen Ólöf Gísladóttir () – Mille Østoft Gaardland ()
















