Stórmeistaranum Helga Áss Grétarssyni (2461) gekk ekki vel á seinni degi atskákhluta minningarmótsins um Mikhail Tal í gær. Aðeins kom hálfur vinningur í hús í fimm skákum. Helgi endaði með 5½ í 11 skákum. Rússneski stórmeistarinn Vladimir Fedoseev (2736) sigraði á mótinu.
Í dag er tefld hraðskák. Tefldar eru 13 skákir með tímamörkunum með tímamörkunum 3+2. Teflmannskan hefst kl. 10. Hægt verður að fylgjast með mótinu beint.
Helgi er nr. 39 í stigaröð 284 keppenda.
- Auglýsing -



















