Tvær umferðir fóru fram á Riga-mótinu í gær. Guðmundur Kjartansson (2453), Stefán Bergsson (2190) og Gauti Páll Jónsson (2057) fengu einn vinning en Helgi Áss Grétarsson (2412) tapaði báðum sínum skákum.
Búnar eru sex umferðir. Gúmmi hefur 4 vinninga, Helgi Áss hefur 3 vinninga en Stefán og Gauti Páll hafa 2½ vinning.
Sjöunda umferð fer fram í dag. Mótið er semi-túrbómót. Tefldar eru 9 umferðir á 7 dögum.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 8, 12 og 14)
Summer Prague Open
Lenka Ptácníková (2089) og Sigurður Ingason (1796) taka þátt í níu umferða opnu móti í Prag dagana 2. -9. ágúst.
Áttunda og næstsíðasta umferð fór fram í gær. Bæði töpuðu þau. Lenka hefur 4½ vinning en Sigurður hefur 1½ vinning.
Níunda og síðasta umferð fer fram í dag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
Split Open
Dagana 3.-11. ágúst fer fram alþjóðlega mótið Split Open í Króatíu. Helgi Pétur Gunnarsson (1740), Páll Þórsson (1725) og Iðunn Helgadóttir (1117) taka þátt.
Sjötta umferð fór fram í gær. Feðginin Helgi Pétur og Iðunn unnu en Páll tapaði. Helgi og Páll hafa 2 vinninga en Iðunn hefur 1½
Sjöunda umferð fer fram í dag.















