Bæði Taflfélag Reykjavíkur og Íslandsmeistarar Víkingaklúbbsins töpuðu í sjöttu og næstsíðustu umferð EM taflfélaga sem fram fór í gær í Svartfjallalandi. TR tapaði 1½-4½ fyrir hinn sterku serbnesku sveit Sloven Ruma. Margeir Pétursson vann og Mohamed Ezat gerði jafntefli en aðrar skákir töpuðust.
Víkingar töpuðu með minnsta muni, 2½-3½, fyrir heimamönnum í sveitinni Buducnost. Hinir sjóðuheitu Björn Þorfinnsson og Sigurður Ingason unnu sínar skákir. Björn hefur unnið 5 skákir í röð og Sigurður tvær. Artur Jakubiec gerði jafntefli.
Úrslit 6. umferðar
TR hefur 6 stig og eru í 35. sæti en Víkingar hafa 5 stig og eru í 43. sæti.
Sjöunda og síðasta umferð fer fram í dag. TR mætir ísraelsku sveitinni Rehovot sem er áþekk þeim að styrkleika. Víkingar mætta finnsku sveitinni Ninja sem er sömuleiðis áþekk þeim að styrkleika. Páll Agnar Þórarinsson hvílir í dag. Það má því búast við jöfnum og spennandi viðureignum í dag. Viðureign TR ætti að vera í útsendingu.
Pörun sjöundu umferðar

- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14:15)















