Boðsmót TR

    0
    237

    Boðsmót TR verður haldið dagana 9-11. maí næstkomandi. Þrátt fyrir nafngiftina er mótið opið öllum!

    Mótið var haldið frá 1968 til 2007 og endurvakið 2022.

    Fyrirkomulag mótsins:

    Föstudagurinn 9. maí klukkan 19:30

    1.-4 umferð. Atskákir með tímamörkunum 15+5

    Laugardagurinn 10.  maí klukkan 11: 5. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30

    Laugardagurinn 10.  maí klukkan 17: 6. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30

    Sunnudagurinn 11.  maí klukkan 11: 7.umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30.

    Engar yfirsetur (BYE) eru leyfðar í mótinu. Eftir mótið verður haldið 9. umferða hraðskákmót með tímamörkunum 3+2. Miðað verður við að það hefjist klukkan 16 á sunnudeginum. Hraðskákmótið er líka opið þeim sem ekki tóku þátt í aðalmótinu, ókeypis fyrir þátttakendur í aðalmótinu, 1000kr fyrir aðra. Hraðskákmótið er reiknað til hraðskákstiga, og aðalmótið er reiknað til at- og kappskákstiga.

    Þáttökugjöld: 5000 kr.

    3000 kr. fyrir 17 ára og yngri

    Ókeypis fyrir GM/IM og TR-inga 17 ára og yngri

    Verðlaunafé í mótinu:

    1. 20.000
    2. 15.000
    3. 10.000
    - Auglýsing -