Minningarmót um Gunnar og Ottó

    0
    593
    Hvenær:
    17. maí, 2025 @ 13:00 – 17:00
    2025-05-17T13:00:00+00:00
    2025-05-17T17:00:00+00:00
    Hvar:
    Félagsheimilið Klifi
    V8R4+W94
    Ólafsbraut, 355 Ólafsvík
    Ísland

    Taflfélag Snæfellsbæjar blæs til glæsilegs minningarmóts 17. maí næstkomandi. Mótið er minningarmót Gunnars Gunnarsson og Ottó A. Árnasonar, báðir merkir menn í sögu Ólafsvíkur. Mótið fer fram í Félagsheimilinu Klifi og hefst klukkan 13:00.

    Tefldar verða 8 umferðir með þar sem fyrstu 4 umferðirnar hafa tímamörkin 4+2 en næstu 4 umferðirnar eru 10+5.

    Verðlaunafé á mótinu verður glæsilegt, yfir eina milljón króna!

    Aðalverðlaun eru:

    1. 250.000
    2. 150.000
    3. 100.000

    Auk þess er gisting fyrir tvö fyrir öll efstu þrjú sætin!

    Aukaverðlaun, öll 30.000 krónur eru fyrir:

    • Kvennaverðlaun
    • U2000
    • U1800
    • 65+
    • Kvenna U16
    • Unglinga U16

    Þátttökugjald á mótið er 5.000 krónur og innifalið er kaffihlaðborð og kvöldmatur! Jafnvel karokee eftir mat ef stemmning er!

    Eins og venjulega er boðið upp á rútuferð frá BSÍ klukkan 09:00 og til baka þegar henta þykir.

    Mót þessi hafa í gegnum tíðina verið afar vel lukkuð, vel sótt og vinsæl meðal skákmanna. Skak.is hvetur skákmenn til að taka þátt á þessu glæsilega móti. Skráning þarf að berast með tölvupósti til Tryggva: tryggvi@grimsis.se og berast í síðasta lagi 14. maí!

    Fyrri sigurvegarar eru: Helgi Ólafsson x2, Hannes Hlífar x2, Þröstur Þórhallsson, Stefán Kristjánsson, Arnar Gunnarsson og Henrik Danielsen.

    - Auglýsing -