Haustmót TR 2026

    0
    151
    Hvenær:
    2. september, 2026 @ 18:30 – 23:00
    2026-09-02T18:30:00+00:00
    2026-09-02T23:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Haustmót TR 2026 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2026 hefst miðvikudaginn 2. september kl. 18:30. Mótið, sem var fyrst haldið árið 1934, er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót Taflfélags Reykjavíkur.

    Mótið er flokkaskipt, öllum opið og verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga. Haustmótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

    Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Adam Omarsson.

    FYRIRKOMULAG:

    Tefldar verða níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver, þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi. Í lokuðu flokkunum er keppendum raðað eftir skákstigum (miðað er við september stigalista FIDE).

    Tímamörk:

    Tímamörk eru 90 mínútur á fyrstu 40 leikina. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina.

    Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar. Í opnum flokki er lágmarksfjöldi þátttakanda 24 og þar af helmingur þeirra með elo-stig.

    Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan. Yfirsetur eru ekki leyfðar í lokuðum flokkum.

    DAGSKRÁ:

    1. umferð: Miðvikudagur 2. september kl. 18:30
    2. umferð: Föstudagur 4. september kl. 18:30
    3. umferð: Sunnudagur 6. september kl. 13:00
    4. umferð: Miðvikudagur 9. september kl. 18:30
    5. umferð: Föstudagur 11. september kl. 18:30
    6. umferð: Sunnudagur 13. september kl. 13:00
    7. umferð: Miðvikudagur 16. september kl. 18:30
    8. umferð: Föstudagur 18. september kl. 18:30
    9. umferð: Sunnudagur 20. september kl. 13:00

    VERÐLAUN:

    Verðlaun í A-flokki:

    1. sæti kr. 125.000 kr.
    2. sæti kr.   75.000 kr.
    3. sæti kr.   35.000 kr.
    4. sæti fær frítt í Skákþing Reykjavíkur 2027.

    Verðlaun í B-flokki:

    1. sæti kr. 25.000 kr.
    2. og 3. sæti fá frítt í Skákþing Reykjavíkur 2027.

     

    Verðlaun í C-flokki

    1. sæti kr. 25.000 kr.
    2. og 3. sæti fá frítt í Skákþing Reykjavíkur 2027.

     

    Verðlaun í Opnum flokki:

    1. sæti kr. 20.000kr.
    2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2027.

    Viðurkenningarskjal fyrir stigalausa, U1800 og U1600.

    Sigurvegari hvers flokks áskilur sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu. Verði keppendur jafnir að vinningum í efstu sætum verður verðlaunafé skipt eftir Hort-kerfi. Lokaröð keppenda í öllum flokkum ákvarðast af mótsstigum (tiebreaks).

    MÓTSSTIG (Tie-break):

    Lokaðir flokkar: 1.Sonneborn-Berger 2.Innbyrðis úrslit 3.Fjöldi sigra.

    Opinn flokkur: 1.Buchholz (-1) 2.Buchholz 3.Innbyrðis úrslit 4.Fjöldi sigra.

    ÞÁTTTÖKUGJÖLD:

    8.000 kr fyrir 18 ára og eldri. Frítt fyrir GM

    4.000 kr. fyrir 17 ára og yngri.

    Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu.

    SKRÁNING:

    Skráningu í alla lokaða flokka lýkur þriðjudaginn 1. september kl.22:00. Skráningu í opinn flokk lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. 2. september kl. 18:15.

    Ef vandamál er með skráningu má hafa samband á taflfelag@taflfelag.is

    - Auglýsing -