Húnabyggð Open 2025

    0
    586
    Hvenær:
    21. júní, 2025 @ 19:30 – 21:30
    2025-06-21T19:30:00+00:00
    2025-06-21T21:30:00+00:00
    Hvar:
    Hótel Blönduós
    Blönduós
    Ísland
    Húnabyggð Open 2025 @ Hótel Blönduós | Blönduós | Húnabyggð | Ísland

    Húnabyggð Open 2025 er opið skákmót sem haldið verður í tengslum við 100 ára afmæli Skáksambands Íslands. Afmæli Skáksambandins verður fagnað dagana 14.-21. júní með ýmiskonar viðburðum og þar ber hæst alþjóðlegt mót sem varir alla vikuna.
    Húnabyggð Open 2025 er teflt eftir svissneska kerfinu og hefst kl. 19:30. Teflt er á Hótel Blönduósi. Tímamörk verða 5+2

    Allir heimamenn og gestir eru hvattir til að taka þátt og taka þátt í þessari frábæru skákhátíð.

    Skráning fer fram á hunabyggd@hunabyggd.is og mótið er opið öllum eins nafnið gefur til kynna. Það eru allir velkomnir en sérstaklega er skorað á brottflutta heimamenn að koma aftur heim og rifja upp gamla takta!

    Það er líka nægjanlegt að mæta rétt fyrir 19:30 skákstað og skrá sig þar.

    - Auglýsing -