ÍSLANDSMÓT BARNASKÓLASVEITA (4.-7 BEKKUR)

    0
    592
    Hvenær:
    22. apríl, 2023 @ 13:00 – 17:00
    2023-04-22T13:00:00+00:00
    2023-04-22T17:00:00+00:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    112 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    10000
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    ÍSLANDSMÓT BARNASKÓLASVEITA (4.-7 BEKKUR) @ Rimaskóli | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Mótið fer fram laugardaginn, 22. apríl í Rimaskóla og hefst kl. 13. Mæting kl. 12:45. Tefldar verða átta umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Mótinu ætti að vera lokið um kl. 17.

    Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 4.–7. bekk en þó er nemendum úr í 1.–3. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a-og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.

    Þátttökugjöld kr. 10.000 kr.- á  sveit. Þó ekki hærra en 20.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.

    Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðlaunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni. Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.

    Tvær efstu sveitir mótsins hljóta rétt til þátttöku á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fer hérlendis í október nk.

    Núverandi Íslandsmeistari barnaskólasveita (4.-7. bekkur) er Vatnsendaskóli. Nánar um mótið í fyrra hér.

    Skráningu skal lokið í síðasta lagi kl. 16, fimmtudaginn 20. apríl. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.

    - Auglýsing -