Íslandsmót ungmenna 2025 (u8-u16)

    0
    545
    Hvenær:
    29. nóvember, 2025 @ 13:00 – 17:00
    2025-11-29T13:00:00-01:00
    2025-11-29T17:00:00-01:00
    Hvar:
    Miðgarður
    Vetrarbraut 18
    210 Garðabær
    Ísland
    Gjald:
    1500
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    Íslandsmót ungmenna 2025 (u8-u16) @ Miðgarður | Garðabær | Garðabær | Ísland

    Íslandsmót ungmenna (u8-u16) fer fram laugardaginn 29. nóvember í hinu glæsilega íþróttahúsi Miðgarði í Garðabæ.

    Mótið hefst kl. 13  og er teflt í fimm aldursflokkum. Keppendur skulu mæta eigi síðar en kl. 12:40 og staðfesta mætingu. Krýndir verða 10 Íslandsmeistarar – efsti strákur og efsta stelpa í öllum flokkunum fimm.

    Afar góð verðlaun verða í boði. Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2026 sem fram fer í Hörpu 25.-31. mars.

    Skráning og greiðsla fer fram á Abler

    8 ára og yngri (f. 2017 og síðar)

    Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.

    Þegar skráðir keppendur (uppfærist daglega)

    9-10 ára (f. 2015 og 2016)

    Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.

    Þegar skráðir keppendur (uppfærist daglega)

    11–12 ára (f. 2013 og 2014)

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 2.

    Þegar skráðir keppendur (uppfærist daglega)

    13–14 ára (f. 2011 og 2012)

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.

    Þegar skráðir keppendur (uppfærist daglega)

    15–16 ára (f. 2009 og 2010)

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5. 

    Þegar skráðir keppendur (uppfærist daglega)

    Skráning og greiðsla þátttökugjalda 

    Sportabler – skráning uppfærist daglega á Chess-Results

    Skráningafrestur rennur út föstudaginn, 28. nóvember kl. 13

    Með skráningu sinni staðfesta keppendur að þeir leyfi myndatökur og birtingu mynda frá mótinu á skak.is og á samfélagsmiðlum sambandsins.

    Verðlaun

    Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasætum gilda oddastig. Þó skal tefld aukakeppni um Íslandsmeistaratitla í þremur elstu aldursflokknum.

    Verðlaunaafhending fer fram að keppni lokinni í hverjum flokki.

    Allir Íslandsmeistarar frá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2026

    Þrír efstu í öllum flokkum fá verðlaunabikar.

    Frekari verðlaun verða kynnt þegar nær dregur.

    Allir keppendur verða leystir út með smá glaðningi.

    Þátttökugjöld eru kr. 2.000 kr. Systkinaafsláttur er 25%.

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskák- eða hraðskákstiga eftir því sem við á.

    Nánar um oddastig

    Allir við alla: 1. Sonneborn-Berger, 2. Innbyrðis úrslit, 3. Fjöldi sigra 4. Hlutkesti

    Opnir flokkar: 1. Buchols (-1), 2. Buchols, 3. Innbyrðis úrslit, 4. Sonneborn-Berger 5. Fjöldi vinningsskáka 6. hlutkesti

     

    - Auglýsing -