Síminn Invitational 2025 – undanrásir

    0
    971
    Hvenær:
    5. janúar, 2025 @ 18:00 – 20:30
    2025-01-05T18:00:00-01:00
    2025-01-05T20:30:00-01:00
    Hvar:
    Chess.com
    Chess.com
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Rafíþróttasamband Íslands
    Síminn Invitational 2025 - undanrásir @ Chess.com

    Ný netmótasyrpa, sem ber nafnið, Síminn Invitational mun hefjast 5. janúar nk. Síminn Invitational er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport.

    Mótið fer fram með áþekku fyrirkomulagi og á síðasta ári. Undanrásir fara fram sunnudaginn 5. janúar kl. 18 en sjálf 16 manna úrslitin hefjast 12. janúar.

    Keppendur í 16 manna úrslitum eru valdir á eftirfarandi hátt:

    1. Keppendur sem komust í átta manna úrslita á Íslandsmótinu í netskák 2024
    2. Þrír stigahæstu skákmenn landsins með virk hraðskákstig 1. janúar 2025 sem falla ekki undir nr. 1
    3. Íslandsmeistari kvenna í hraðskák 2024
    4. Fjórir efstu í undranrásunum sem fram fara 5. janúar.

    Dagskráin er fyrirhuguð sem hér segir (gæti tekið smá breytingum).

    • 5. janúar – undanrásir  á Chess.com – 9-11 umferðir
    • 12. janúar – 16 manna úrslit – 2 einvígi
    • 19. janúar – 16 manna úrslit – 2 einvígi
    • 26. janúar – 16 manna úrslit – 2 einvígi
    • 9. febrúar – 16 manna úrslit – 2 einvígi
    • 9. mars – 8 manna úrslit – 2 einvígi
    • 16. mars – 8 manna úrslit – 2 einvígi
    • 23. mars – undanúrslit– 1 einvígi
    • 30. mars – undanúrslit – 1 einvígi
    • 6. apríl – úrslit

    Í 16 og 8 manna úrslitum er fyrirhugað að hafa sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Í undanúrslitum og er fyrirhugað að hafa 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

    Dagskrá og fyrirkomulag geta tekið smávægilegum breytingum.

    Nánar verður greint frá fyrirkomulagi á næstu dögum.

    - Auglýsing -