Austurvegur
400 Ísafjörður
Ísland

Úrslit Landsmótsins í skólaskák fara fram laugardaginn 3. og 4. maí í Grunnskólanum á Ísafirði. Úrslitin verða tefld í tólf manna flokkum þar sem allir tefla við alla.
Teflt er í þremur flokkum, 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.
Umhugsunartími: 15 mínútur á mann með 5 sekúndna viðbótartíma á leik. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.
Dagskrá:
- Laugardagurinn, 3. maí, 1.-6. umferð, Kl. 11-16
- Sunnudagurinn, 4. maí, 7.-11. umferð, Kl. 11-16
Verði keppendur jafnir í efsta sæti tefla þeir aukakeppni um titilinn með hraðskáktímamörkum. 5 3. Aukakeppni fer fram að lokinni verðlaunaafhendingu ef hægt er. Um önnur sæti gilda oddastig.
Verðlaun í elsta flokki:
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 80.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 20.000 kr.
Efsti keppandi af landsbyggð: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
Verðlaun í yngri flokkum
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 30.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 20.000 kr.
Efsti keppandi af landsbyggð: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
Aðeins er hægt að vinna til einna verðlauna.
Engin þátttökugjöld. Hægt er að óska eftir ferðastyrk ef ferðalagið er meira en 1.000 km samtals í akstri.
Landsmótsstjóri 2025 verður Gauti Páll Jónsson.