Meistaramót Skákskóla Íslands 2022 – Unglingameistaramót Íslands 2022 – U22

    0
    714
    Hvenær:
    15. desember, 2022 @ 19:00 – 18. desember, 2022 @ 14:30
    2022-12-15T19:00:00-01:00
    2022-12-18T14:30:00-01:00
    Hvar:
    Skákskóli Íslands
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Skákskóli Íslands og Skáksamband Íslands
    Meistaramót Skákskóla Íslands 2022 - Unglingameistaramót Íslands 2022 - U22 @ Skákskóli Íslands | Reykjavík | Ísland

    Meistaramót Skákskóla Íslands 2022 – Unglingameistaramót Íslands 2022 – U22 vverður haldið dagana 15.- 18. desember nk. Teflt verður húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Sigurvegarinn, tryggir sér keppnisrétt í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands 2023.

    Dagskrá:

    1. umferð, kl. 19, fimmtudaginn 15. desember
    2. umferð, kl. 15. föstudaginn 16. desember .
    3. umferð kl.: 19. föstudaginn 16. desember*
    4. umferð kl.: 11, laugardaginn, 17. desember
    5. umferð kl.: 17, laugardaginn, 17. desember
    6. umferð kl.: 10.30, sunnudaginn, 18. desember

    * Hægt verður að taka eina hálfs vinnings yfirsetu í 1. – 3. umferð á mótinu.

    • Umferð hefst 15 mínútur eftir að síðustu skák 2. umferðar lýkur.
    • Verðlaunaafhending fer fram strax að móti loknu.

    Mótið er opið öllum skákmönnum fæddum á bilinu 2000-2004. Jafnframt er yngri skákmönnum heimilt að taka þátt hafi þeir a.m.k. 1500 kappskákstig eða hafi verið meðal verðlaunahafa í flokkum í u12-u16 á Íslandsmót ungmenna 2022.

    Teflt verður um sæmdarheitin Meistari Skákskóla Íslands 2022 og titilinn Unglingameistari Islands 2022. Meistari Skákskóla Íslands getur einungis orðið keppandi sem er fæddur árið 2002 eða síðar.

    Verði menn jafnir að vinningum skal teflt um það hver telst sigurvegari mótsins. Oddastig eru látin gilda um önnur sæti verði menn jafnir að vinningum.

    Tímamörk verða 90+30.

    Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

    Mótið fer fram í húsnæði Skákskóla Íslands að Faxafeni 12.

    Skráning er til kl. 16, fimmtudaginn, 15. desember á skák.is.

    Verðlaun:

    1. sæti: Farmiði að verðmæti kr. 50 þúsund + uppihaldskostnaður kr. 45 þús. Þáttökuréttur í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands 2023. Þá er keppt um tvo titla.
    2. sæti: Farmiði að verðmæti kr. 50 þús.
    3. – 5. sæti: Skákbækur eða efni að eigin vali frá Chessable.

    Auk þess verða veitt stigaflokkaverðlaun í mótinu:

    1800 – 2000 elo:

    1. verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.

    1600 – 1800 elo:

    1. verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.

    * Ekki er hægt að vinna til verðlauna nema í einum flokki.

    * Skákir mótsins verða sýndar í beinni útsendingu.

    * Keppendur afhendi mótstjórn síma sína fyrir hverja umferð.

    Mótsstjórn áskilur sér rétt til að gera breytingar á boðaðri dagskrá. 

    Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands

    Helgi Ólafsson, skólastjóri Skákskóla Íslands

    - Auglýsing -