Vormót Skákskóla Íslands

    0
    563
    Hvenær:
    24. maí, 2025 @ 11:00 – 25. maí, 2025 @ 15:00
    2025-05-24T11:00:00+00:00
    2025-05-25T15:00:00+00:00
    Hvar:
    Skákskóli Íslands
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Vormót Skákskóla Íslands @ Skákskóli Íslands | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Vormót Skákskóla Íslands fer fram dagana 24.-25. maí. Mótið markar lok vorannar skólans.

    Mótið er opið öllum nemendum fæddum 2005 og síðar sem tekið hafa þátt í námskeiðum og starfsemi Skákskólans starfsárið 2024-2025.

    Tefldar verða 9 umferðir.
    Tímamörk verða 15+5 og skákirnar reiknaðar til atskákstiga.

    Dagskrá:

    Laugardagur 24. maí
    Umferðir 1-5
    kl. 11:00-16:00

    Sunnudagur 25. maí
    Umferðir 6-9
    kl. 11:00-15:00

    Verðlaun:
    1. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 50.000 kr.
    2. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 30.000 kr.
    3. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.

    Aukaverðlaun fyrir keppendur undir 1800 skákstigum:
    1. verðlaun – Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
    2. verðlaun – Kennsluefni af Chessable að verðmæti 15.000 kr.
    3. verðlaun – Kennsluefni af Chessable að verðmæti 10.000 kr.

    Besti árangur stúlkna: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.

    Ekki er hægt að vinna til fleiri en einna verðlauna.

    Skráningarform
    Þegar skráðir keppendur

    - Auglýsing -