Bjargargata 1 102
102 Reykjavík
Ísland

Chess After Dark í góðu samstarfi við Sykursal í Veru Mathöll heldur skákmót laugardaginn 10.júní klukkan 14:00
Tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 5+3.
Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Frítt er inn á mótið.
Fyrirkomulagið á mótinu er eftirfarandi:
Teflt verður í tveimur flokkum – undir 1600 elóstigum og yfir 1600 elóstigum.
Fjórir efstu í hverjum flokki tefla svo í útsláttarkeppni um sigur í mótinu.
Fyrstu verðlaun í báðum flokkum er 50.000 kr gjafabréf frá PLAY.
Verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin í báðum flokkum.
Ef einhverjar spurningar vakna – ekki hika við að hafa samband á chessafterdark@chessafterdark.is
Skráningu lýkur 18.00 degi fyrir mót þ.e föstudaginn 9.júní
Skráning hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfXkRrq-1PLYV4luO6quHECOjSRdSI9IfiU9n8r1ms8WQuCLw/viewform
ATH mótið er einungis fyrir 18 ára og eldri.
Hlökkum til að sjá ykkur!