Skákþing Íslands 2024 – áskorendaflokkur

    0
    1724
    Hvenær:
    1. júní, 2024 @ 13:00 – 9. júní, 2024 @ 18:00
    2024-06-01T13:00:00+00:00
    2024-06-09T18:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    10000
    Skákþing Íslands 2024 - áskorendaflokkur @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák (Skákþings Íslands) fer fram í skákhöll TR Faxafeni 12, dagana 1.-9. júní

    Verðlaun

    1. 100.000 kr.
    2.   60.000 kr.
    3.   40.000 kr

    Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfi séu menn efstir í verðlaunasætum í áskorendaflokki. Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í næsta landsliðsflokki Skákþings Íslands. Oddastigaútreikningur* ræður lokaröð sæta.

    Umferðartafla

    1. Laugardagurinn, 1.júní kl. 13:00
    2. Sunnudagurinn, 2. júní, kl 13:00
    3. Mánudagurinn, 3. júní, kl. 18:30
    4. Þriðjudagurinn, 4. júní, kl. 18:30
    5. Miðvikudagurinn, 5. júní, kl. 18:30
    6. Fimmtudagurinn, 6. júní, kl. 18:30
    7. Föstudagurinn, 7. júní, kl. 18:30
    8. Laugardagurinn, 8. júní kl. 13:00
    9. Sunnudagurinn, 9. júní, kl. 13:00

    Þátttökugjöld

    Þátttökugjöld eru 10.000 kr. Unglingar 16 ára og yngri (2008 og síðar) fá 50% afslátt. Titilhafar aðrir en CM/WCM fá frí þátttökugjöld.

    Skráning

    Skráning fer eingöngu fram á gula kassanum á Skák.is. Ekki verður hægt að skrá sig til leiks á skákstað. Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn, 30. maí kl. 23:59. Þátttökugjöld skal leggja inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409. Skráning telst ekki gild fyrr en þátttökugjald er greitt.

    Tímamörk

    90 mínútur + 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik.

    Yfirsetur

    Hægt er að taka tvær yfirsetur í umferðum 1-7 og fá fyrir hana hálfan  vinning. Biðja þarf um yfirsetu á sannarlegan hátt áður en síðustu skák umferðarinnar lýkur.

    *Oddastig

    • Flestar tefldar skákir
    • Bucholz -1
    • Bucholz 
    • Sonneborn-Berger
    • Innbyrðis úrslit
    • Hlutkesti
    - Auglýsing -