Skólamót Kópavogs 2025

    0
    49
    Hvenær:
    30. september, 2025 @ 08:30 – 1. október, 2025 @ 13:15
    2025-09-30T08:30:00+00:00
    2025-10-01T13:15:00+00:00
    Gjald:
    7500
    Skólamót Kópavogs 2025
    Skólamót Kópavogs verður haldið í stúkunni í Breiðablik glersal, dagana 30. september og 1. október nk.

    Fjórir eru í hverju liði , nema í stúlknaflokki eru 3 í hverju liði, og hægt að hafa varamenn.
    Skráning hér neðst í þessari frétt.

    Dagskrá:

    Þri 30.sep fyrir hádegi 8:30 – 11:15:  5.-7. bekkur
    Umferðir og tímamörk: 6 umferðir, 8min +2sek á leik

    Þri 30.sep fyrir hádegi 11:30 – 13:15: 1.2. bekkur
    Umferðir og tímamörk: 5 umferðir, 5min

    Þri 30. sep fyrir hádegi 13:30 – 15:00: Stúlkur 5-10. bekkur (3 stúlkur í liði)
    Umferðir og tímamörk: 5 umferðir, 8min +2sek á leik

    Mið 1.okt fyrir hádegi 08:30 – 11:15: 8.-10. bekkur
    Umferðir og tímamörk: 5 umferðir, 8min +2sek á leik

    Mið 1.okt fyrir hádegi 11:30 – 13:15: 3.-4. bekkur
    Umferðir og tímamörk: 6 umferðir, 8min +2sek á leik

    Mæting korter fyrir upphafstíma móts.

    Mikilvægt að skólar sendi fullorðinn ábyrgðarmann með sínum krökkum til að hjálpa til við eftirlit og til að halda uppi aga.

    Þátttökugjald: 7500kr á sveit, þó aldrei meira en 30.000kr fyrir hvern skóla fyrir öll mótin.

    Skráning og mótstjórn:

    Umsjónarmenn með skákstarfi í hverjum skóla skrá sínar sveitir hér að neðan. Nemandi má keppa með eldri bekk, en teflir þá ekki með sínum bekk líka. Stúlkur mega þó tefla í opnum flokki og stúlknaflokki.

    Skákstjóri verður skákmeistarinn Daði Ómarsson, en skipuleggjandi er skákdeild Breiðabliks. Þeim til aðstoðar verða skákkennarar í Kópavogi og stjórnarmenn skákdeildarinnar.

    Skráningu lýkur kl. 12:00 mánudaginn 29. september
    Upplýsingar um þegar skráðar sveitir má finna hér:

    - Auglýsing -