Suðurlandsmótið í skólaskák 2023

    0
    941
    Hvenær:
    22. maí, 2023 @ 13:00 – 15:30
    2023-05-22T13:00:00+00:00
    2023-05-22T15:30:00+00:00
    Hvar:
    Staður á Eyrarbakka
    820 Eyrarbakki
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Suðurlandsmótið í skólaskák 2023 @ Staður á Eyrarbakka | Eyrarbakki | Sveitarfélagið Árborg | Ísland

    Suðurlandsmót grunnskóla í skólaskák fer fram 22. maí í samkomuhúsinu Staður á Eyrarbakka .Mótið hefst 13:15 en mæting er 13:00.  Keppendur þurfa að staðfesta þátttök við skákstjóra.

    Hver skóli af svæðinu getur mætt með ótakmarkaðan fjölda keppenda. Teflt verður í einstaklingsflokkum 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.

    Umferðarfjöldi og tímamörk verða tilkynnt þegar nær dregur, en má gera ráð fyrir 5-7 umferðum í hvorum flokki með umhugsunartíma 5 mínútur á mann. Miðað er við að mótinu og verðlaunaafhendingu verði lokið um kl. 15:30.

    Skráningarfrestur er til kl. 13, föstudaginn, 19. maí.

    Verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Sigurvegari hvers flokks fær keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer í Kópavogi 10. og 11. júní.

    Æsikilegt er að skólar sem sendi 10 keppendur eða fleiri sendi starfsmann með keppendum.

    - Auglýsing -