Vormót Skákskóla Íslands

    0
    202
    Hvenær:
    23. maí, 2026 @ 11:00 – 24. maí, 2026 @ 15:00
    2026-05-23T11:00:00+00:00
    2026-05-24T15:00:00+00:00

    Vormót Skákskóla Íslands fer fram dagana 23.-24. maí í húsnæði skólans, Faxafeni 12.

    Mótið er opið öllum iðkendum Skákskólans sem tekið hafa þátt í námskeiðum og annarri starfsemi skólans á starfsárinu 2025-2026.

    Tefldar verða 9 umferðir.
    Tímamörk verða 15+5 og skákirnar reiknaðar til atskákstiga.

    Dagskrá:

    Laugardagur 23. maí
    Umferðir 1-5
    kl. 11:00-16:00

    Sunnudagur 24. maí
    Umferðir 6-9
    kl. 11:00-15:00

    Gert verður matarhlé á milli umferða báða dagana.

    Markús Orri Óskarsson, Mikael Bjarki Heiðarsson og Markús Orri Jóhannsson röðuðu sér í efstu þrjú sætin á mótinu árið 2025

    Verðlaun:
    1. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 50.000 kr.
    2. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 30.000 kr.
    3. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.

    Veitt verða aukaverðlaun fyrir bestan árangur miðað við eigin stig og vinningafjölda í eftirtöldum flokkum:

    • 1400-1600 stig
    • 1601-1900 stig
    • 1901+ stig
    • stúlknaflokki

    Aukaverðlaun í mótinu eru m.a. ferðastyrkir og námsefni af Chessable og víðar.

    Ekki er hægt að vinna til fleiri en einna verðlauna.

    Mótsstjórn áskilur sér rétt til breytinga á fyrirkomulagi mótsins, verði þörf á.

    - Auglýsing -