Skráning
Setja í mitt dagatal
Hvenær:
20. febrúar, 2026 @ 16:00 – 22. febrúar, 2026 @ 18:00
2026-02-20T16:00:00-01:00
2026-02-22T18:00:00-01:00
Hvar:
Skákskóli Íslands
Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland
Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland
Gjald:
22500
Tengiliður:

Skáksamband Íslands býður upp á FA-dómaranámskeið 20.-22. febrúar nk. Kennari á námskeiðinu verður enginn annar en okkar langreyndasti og virtasti skákdómari á alþjóða vísu; Omar Salama.
Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu FIDE.
Dagskráin er sem hér segir:
Dagskrá:
Föstudagur 20. febrúar
- 16:00–18:00 Skákreglur – Grundvallarreglur (2 klst.)
- 18:00–22:00 Skákreglur – Keppnisreglur (4 klst.)
Laugardagur 21. febrúar
- 10:00–12:00 Gangur skáka (45 mín), Svissneska kerfið (1 klst.), Skákklukka (15 mín)
- 13:00–17:00 Skákdómaratitlar (2 klst.), Heiðarleiki (fair play) í skák (2 klst.)
Sunnudagur 22. febrúar
- 09:00–13:00 Titlar (2,5 klst.) og skákstig (1,5 klst.)
- 14:00–18:00 Próf (4 klst.)
Fullt námskeiðsgjald er 22.500 kr. en starfandi dómarar/þjálfarar við skákfélög greiða einungis 17.500 kr. Innifalið í því er prófgjald til FIDE (€20).
Námskeiðið fer fram í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.
Einnig verður námskeiðið sent út í gegnum fjarfund fyrir þá sem komast ekki á staðinn. Athugið að er ekki hægt að taka prófið nema á staðnum.
- Auglýsing -









