Sex íslenskir skákmenn tefla nú á Kronborg Open í Danmörku. Mótið er reyndar ekki klassískt opið mót þar sem teflt er í ótal flokkum, frá GM flokkum niður í meistaragrúppur og menn tefla við skákmenn af álíkum styrkleika. Ritstjórn barst ábending um að sjötti íslenski skákmaðurinn lúrði í mótinu undir „vitlausum fána“. Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr Heimisson vann þrjár fyrstu skákir sínar í sínum flokki en laut loks í dúk í fjórðu umferð í dag eftir að hafa unnið 17 af 18 kappskákum!

Teflt er stíft, tvær umferðir á dag að jafnaði og voru þriðja og fjórða umferð tefldar í dag. Einu skákirnar sem virðast vera beint af íslensku keppendunum eru hjá Degi Ragnarssyni í IM-grúppu. Dagur gerði tvö jafntefli í dag.

Í fyrri skákinni stóð Dagur lengst af höllum fæti gegn frönskum IM, Artur Lucas (2329) en Dagur náði fyrir rest að redda sér og jafntefli niðurstaðan.

Seinni skák Dags var gegn belgískum FIDE-meistara. Dagur naut greinilega góðs af nýlegri taflmennsku á Íslandsmótinu og fékk upp nánast sömu stöðu og gegn Guðmundi Kjartanssyni á Íslandsmótinu þar sem hann fékk ágætis möguleika. Dagur fékk flotta sénsa en Kobe hitti einhverjum kraftaverka-þristi og bjargaði taflinu!

Dagur hefur 2 vinninga af 4 í sinni IM-grúppu.

Hilmir Freyr vann fyrri skák dagsins og var þar með kominn í 17 vinninga af 18 í kappskákum en í seinni skák dagsins stöðvaði sænski alþjóðlegi meistarinn Bengt Lindberg sigurgöngu Hilmis. Hilmir má samt ágætlega vel við una með 3 vinninga af 4 mögulegum.

Tvíburarnir Björn Hólm og Bárður Örn Birkissynir fóru traust af stað á fyrsta keppnisdegi. Björn Hólm fékk einn og hálfan vinning gegn sterkum andstæðingum á meðan að Bárður gerði jafntefli í báðum sínum skákum.

Ólafur Guðmarsson var á pari í sínum flokki, vann og tapaði í Masters-9 en á sama tíma var Jóhann Ragnarsson í fínum málum í Masters-10 með 1,5 vinning á fyrsta keppnisdegi.

Skákir beint:

Beinir tenglar á úrslitsíðu mótsins

Um mótið:

Kronborg „open“ er samansafn af lokuðum flokkum þar sem allir tefla við alla. Flokkarnir eru allt frá GM flokkum og IM flokkum niður í fjölda Masters-flokka og jafnvel niður í Basic-flokka. Í öllum flokkum fá skákmenn andstæðinga á sínu styrkleikabili!

IM Dagur Ragnarsson tekur þátt í IM-flokki, Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr skráði sig seint til leiks og styrkir WIM-grúppuna, Birkissynir í Master 1 flokki, Ólafur Guðmarsson í Masters-9 og Jóhann Ragnarsson í Master 10. Tvær efstu grúppurnar af þessum hófu taflmennsku í dag en hinar á morgun!

- Auglýsing -