Þriðji keppnisdagur fór fram í dag á Kronborg Open í Danmörku. Mótið er reyndar ekki klassískt opið mót þar sem teflt er í ótal flokkum. Meistaraflokkarnir flestir tefldu fimmtu og sjöttu umferð en flokkar með stigalægri skákmönnum voru að tefla þriðju og fjórðu umferð.
Teflt er stíft, tvær umferðir á dag að jafnaði. Einu skákirnar sem virðast vera beint af íslensku keppendunum eru hjá Degi Ragnarssyni í IM-grúppu. Dagur gerði jafntefli og vann aðra skákina í dag.
Í fyrri skákinni gerði Dagur jafntefli með svörtu í Petroff. Dagur hafði aðeins betri færi þegar leið á, peði yfir en biskupapar hvíts var nægjanlega sterkt á móti, jafntefli.
Seinni skák Dags var gegn sænskum FIDE-meistara. Dagur náði þar góðum sigri eftir frumlega byrjanataflmennsku beggja!
Dagur hefur 3,5 vinninga af 6 í sinni IM-grúppu.
Hilmir Freyr vann fyrri skák dagsins en tapaði þeirri seinni og hefur 4 vinninga af 6 mögulegum.
Tvíburarnir Björn Hólm og Bárður Örn Birkissynir eru nokkuð traustir í sínum flokkum. Björn gerði jafntefli í báðum í dag og hefur 2,5 vinning af 4 en Bárður tapaði einni skák í dag og hefur 1,5 vinning.
Ólafur Guðmarsson tapaði báðum sínum skákum í Masters-9 og hefur 1,5 vinning af 4 Jóhann Ragnarsson er í banastuði í Masters-10, vann báðar skákirnar í dag, og hefur 3,5 vinning af 4.
Skákir beint:
Beinir tenglar á úrslitsíðu mótsins
- IM-grúppa (Dagur)
- WIM-grúppa (Hilmir)
- Masters-1 (Björn Hólm og Bárður Örn)
- Masters-9 (Ólafur Guðmarsson)
- Masters-10 (Jóhann)
Um mótið:
Kronborg „open“ er samansafn af lokuðum flokkum þar sem allir tefla við alla. Flokkarnir eru allt frá GM flokkum og IM flokkum niður í fjölda Masters-flokka og jafnvel niður í Basic-flokka. Í öllum flokkum fá skákmenn andstæðinga á sínu styrkleikabili!
IM Dagur Ragnarsson tekur þátt í IM-flokki, Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr skráði sig seint til leiks og styrkir WIM-grúppuna, Birkissynir í Master 1 flokki, Ólafur Guðmarsson í Masters-9 og Jóhann Ragnarsson í Master 10. Tvær efstu grúppurnar af þessum hófu taflmennsku í dag en hinar á morgun!















