Héðinn Steingrímsson Íslandsmeistari í skák eftir sannfærandi sigur á Hjörvari

0
1299

Héðinn Steingrímsson er Íslandsmeistari í skák 2015 eftir sannfærandi sigur á Hjörvari Steini Grétarssyni í lokaumferð Íslandsmótsins í skák sem fram fer í Hörpu í dag. Héðinn hlaut 9,5 í 11 skákum sem er frábært skor í svo sterku móti. Frammistaða hans samsvaraði 2763 skákstigum og hækkar hann um 29 skákstig fyrir hana. Héðinn vann sjö síðustu skákirnar!

Ingvar Þór Jóhannesson skýrir skákina á ensku á heimasíðu mótsins.

Þetta er þriðji Íslandsmeistaratitill Héðins. Hann vann fyrst mótið árið 1990, sem þá fór fram í Höfn í Hornafirði, þá aðeins 15 ára. Það er met sem enn stendur og verður seint slegið. Hann endurtók leikinn árið 2011 á Eiðum.

Hjörvar Steinn hlaut 8 vinninga og varð annar. Mjög góður árangur hjá Hjörvari einnig. Átta vinningar hafa oft dugað til vinnings á Íslandsmótinu en svo varð ekki í ár.

Hannes Hlífar Stefánsson og Jón L. Árnason urðu jafnir í 3.-4. sæti með 6,5 vinning. Það er þegar ljóst þótt enn sé tveimur skákum ólokið í umferðinni. Mjög góður árangur hjá Jóni sem var að tefla á sínu fyrsta Íslandsmóti í 24 ár! Hannes, sem er sigursælastur allra í sögu Íslandsmótanna með 12 titla, hefði örugglega vilja gera betur. Hann var þó sá eini sem vann Héðin.

Einar Hjalti Jensson varð fimmti með 6 vinninga. Afar góður árangur hjá honum sem tryggði sér þar með sinn lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli.

Lokahóf mótsins fer fram í Smurstöðinni í Hörpu og verður milli 19-21 í kvöld. Þangað eru allir 18 og eldri velkomnir til að fagna nýjum Íslandsmeistara og til að hitta aðra skákáhugamenn og gera sér góðan dag. Tilboðsverð á barnum fyrir þá sem það kjósa.

Ítarleg umfjöllun um Íslandsmótið verður í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.