Hjörvar tryggði sér á mótinu með því að leggja Vigni að velli. MYnd: GB

Níunda og síðasta umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 13. Teflt er við glæsilegar aðstæður í Bankanum – Vinnustofu á Selfossi og eru áhorfendur velkomnir.

Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) hefur tryggt sér sigur á mótinu en hann er efstur með 6½ vinning. Hannes Hlífar Stefánsson (2525) og Héðinn Steingrímsson (2538) eru í 2.-3. sæti með 5 vinninga. Hilmir Freyr Heimisson (2321) og Vignir Vatnar Stefánsson (2501) eru svo í 4.-5. sæti með 4½ vinning.

Mótið á Chess-Results

Viðureignir níunud umferð

  • Hilmir Freyr Heimisson (4½) – Hjörvar Steinn Grétarsson (6½)
  • Héðinn Steingrímsson (5) – Guðmundur Kjartansson (4)
  • Bragi Þorfinnsson (3½) – Hannes Hlífar Stefánsson (5)
  • Vignir Vatnar Stefánsson (4½) – Alexander Oliver Mai (2)
  • Þröstur Þórhallsson (4) – Símon Þórhallsson (1)

Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar og hefst því upp úr kl. 14 í dag.

Skákvarpið á Twitch

Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu á má nálgast á ýmsum stöðum þar.

Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.