Áttunda og næstsíðasta umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 14. Teflt er við glæsilegar aðstæður í Bankanum – Vinnustofu á Selfossi og eru áhorfendur velkomnir.
Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) er efstur með 5½ vinning. Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2501) er annar með 4½ vinning. Þeir mætast í dag og þarf Vignir á sigri að halda ætli hann sér að halda í vonina að verða Íslandsmeistari. Fimm keppendur koma jafnir í 3.-7. sæti.
Viðureignir áttundu umferð
- Hjörvar Steinn Grétarsson (5½) – Vignir Vatnar Stefánsson (4½)
- Hannes Hlífar Stefánsson (4) – Þröstur Þórhallsson (4)
- Guðmundur Kjartansson (4) – Bragi Þorfinnsson (2½)
- Alexander Oliver Mai (2) – Héðinn Steingrímsson (4)
- Símon Þórhallsson (½) – Hilmir Freyr Heimisson (4)
Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar og hefst því upp úr kl. 15 í dag.
Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu á má nálgast á ýmsum stöðum þar.
Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.