Sjötta umferð Íslandsmótsins í skák, minningarmóts um Hemma Gunn, var æsispennandi og mest var spennan í skákum, skákmeistara Reykjavíkur, Stefáns Bergssonar (2186) og Þrastar Þórhallssonar (2416) annars vegar og skák Héðins Steingrímssonar (2583) og Vignis Vatnar Stefánssonar (2284) hins vegar. Spennan var hins vegar munni í skák Helga Áss Grétarssonar og Hannesar Hlífars Stefánssonar (2541) sem gerðu tilþrifalítið jafntefli á fyrsta borði.
Þröstur vann Stefán eftir að hafa lengi verið í köðlunum. Héðinn virtist vera á góðri leið með að vinna Vigni og fórnaði manni fyrir vænlega sókn. Vignir sýndi hins vegar gríðarlega útsjónarsemi í vörninni og bætti stöðuna jafnt og þétt og vann virkilega góðan sigur á stigahæsta skákmanni landsins.
Úrslit sjöttu umferðar má finna á Chess-Results.
Þröstur, Hannes og Helgi Áss eru efstir með 5 vinninga. Jóhann Ingvason (2164), Lenka Ptácníková (2230), sem vann afar góðan sigur á bandaríska alþjóðlega meistaranum Justin Sarkar (2297) eru skammt undan með 4½ vinning. Lenka er langefst á Íslandsmóti kvenna og Vignir er efstur á Unglingameistaramóti Íslands en bæði mótin eru hluti af Íslandsmótinu.
Stöðu mótsins má finna á Chess-Results
Sjöunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 16:30. Þá mætast Hannes og Þröstur. Helgi Áss mætir stórmeistarabananum Vigni Vatnar. Lenka teflir við Jóhann Ingvason.
Röðun sjöundu umferðar má finna á Chess-Results.
Röð efstu manna í verðlaunaflokkum:
Íslandsmót kvenna
- Lenka Ptácníková 4½ v.
- Guðlaug Þorsteinsdóttir 3½ v.
- Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir 2½ v.
Unglingameistaramót Íslands (u22)
- Vignir Vatnar Stefánsson 4½ v.
- Gauti Páll Jónsson 4 v.
- Benedikt Briem 3½ v.
- Birkir Ísak Jóhannsson 3½ v.
Besti stigaárangur miðað við eigin skákstig (+2000)
- Jóhann Ingvason (+197)
- Helgi Áss Grétarsson (+154)
- Lenka Ptácníková (+135)
- Gauti Páll Jónsson (+113)
Besti stigaárangur miðað við eigin skákstig (-2000)
- Birkir Ísak Jóhannsson (+382)
- Hörður Jónasson (+330)
- Arnar Heiðarsson (+309)
- Benedikt Briem (+291)
- Þórður Guðmundsson (+283)
- Benedikt Þórisson (+223)
Allar skákir morgundagsins, nema ein verða sýndar beint á vefsíðu mótsins.
Fyrir þá sem eru með snjallsíma og vilja fylgjast með mælir ritstjóri með forritunum (öppunum) Follow Chess og Chess24. Best er þó að mæta á skákstað og drekka í sig stemminguna þar. Frítt kaffi á könnunni og tilvalið að skoða minningarvegginn um Hemma Gunn.








