Aðstæður í Bankanum eru til mikillar fyrirmyndar. Mynd: RL

Fjróða umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 14. Teflt er við glæsilegar aðstæður í Bankanum – Vinnustofu á Selfossi og eru áhorfendur velkomnir.

Fimm skákmenn eru efstir og jafnir. Tveir forystusauðana mætast í dag en það eru stórmeistararnir Bragi Þorfinnsson og Héðinn Steingrímsson.

  • Bragi Þorfinnsson (2) – Héðinn Steingrímsson (2)
  • Guðmundur Kjartansson (1½) – Hilmir Freyr Heimisson (2)
  • Símon Þórhallsson (½) – Hjörvar Steinn Grétarsson (2)
  • Hannes Hlífar Stefánsson (2) – Alexander Oliver Mai (½)
  • Þröstur Þórhallsson (1½) – Vignir Vatnar Stefánsson (1)

Mótið á Chess-Results

Hjörvar vann Hannes í spennandi skák í gær. Mynd: RL

Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar og hefst því upp úr kl. 15 í dag.

Skákvarpið á Twitch

Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu á má nálgast á ýmsum stöðum þar.

Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.