Wesley So (2783) sigraði á at- og hraðskákmótinu, Your Next Move, sem lauk í Leuven í Belgíu í gær. Mótið er fyrstu hluti mótasyrpunnar Grand Chess Tour.
So gekk ekki vel í hraðskákinni en var langbestur í atskákinni. Í 2.-3. sæti urðu Sergey Karjakin (2782) og Maxime Vachier-Lagrave (2789).
Skákmennirnir halda nú til Parísar þar sem annað sambærilegt mót fer fram 20.-24. júní. Sömu keppendur nema að Vladimir Kramnik kemur inn fyrir Anish Giri.
Ítarlega frásögn um mótið má finna á Chess.com.
Lokastaðan

- Auglýsing -


















