Baccalá bar og Ektafiskur á Hauganesi standa fyrir tveimur hraðskákmótum föstudaginn 10. ágúst nk. Bæði mótin verða á veitingastaðnum Baccalá bar.
Baccalá bar mótið verður haldið í þriðja sinn. Það hefst kl. 15.00 stundvíslega.
Tefldar verða 11 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Öllum er heimil þátttaka, en hámarksfjöldi keppenda er 30. Verðlaunafé er samtals 150.000 kr. og skiptist sem hér segir:
- 1. verðlaun kr. 50.000
- 2. verðlaun kr. 30.000
- 3. verðlaun kr. 20.000
- 4. verðlaun kr. 10.000
- 5.-12. verðlaun kr. 5.000
Skákstjóri verður Sigurður Arnarsson
Gert verður stutt hlé á mótinu svo keppendur geti gætt sér Fiskidagssúpu í boði mótshaldara.
Væntanlegir keppendur geta skráð sig á skak.is eða hjá Ingimar Jónssyni (ingimarj@ismennt.is). Þeir 25 sem skrá sig fyrst fá rétt til þátttöku; aðrir fara á biðlista. Mótshaldarar taka frá fimm boðsæti.
***
Hraðskákmót Ektafisks verður haldið í fyrsta sinn. Það hefst kl. 22.00 um kvöldið. Tefldar verða 9 umferðir með 7 minútna umhugsunartíma. Mótið er boðsmót. Öllum verðlaunahöfum á Baccalá bar mótinu er boðin þátttaka. Mótshaldarar munu bjóða 5-7 öðrum skákmönnum þátttöku í mótinu. Verðlaunafé er samtals 80.000 kr. og skiptist sem hér segir:
- verðlaun kr, 30.000
- verðlaun kr. 20.000
- verðlaun kr. 15.000
- verðlaun kr. 10.000
- verðlaun kr,. 5.000
Skákstjóri verður Sigurður Arnarsson
Ingimar Jónsson svarar fyrirspurnum um mótið (ingimarj@ismennt.is).
***
Vakin er athygli á að föstudagskvöldið 10. ágúst er súpukvöld á Dalvík í upphafi Fiskidagsins mikla og því tilvalið að skerpa matarlystina með nokkrum bröndóttum á skákborðinu. Hauganes er í u.þ.b. 10 mínútna akstursfjarlægð frá Dalvík.
Á Hauganesi er tjaldsvæði með snyrtingum og rafmagni. Í flæðarmálinu hefur verið komið upp tveimur heitum pottum og búningsklefum.















