Æsispennandi Kringluskákmóti lauk í gær með því að Vignir Vatnar Stefánsson (Sjóvá) og Helgi Áss Grétarsson (Suzuki bílar) urðu efstir og jafnir með 6. vinninga af sjö mögulegum. Vignir varð hlutskarpari eftir stigaútreikning, en það munaði litlu. Jóhann Hjartarson (Íslensk Erfðargreining) þurfti að sleppa síðustu umferð vegna tónleika, en hann hefði mætt Vigni í síðustu umferð. Björn Þorfinnsson (Spútnik) náði þriðja sætinu á sömu reglu, en fimm keppendur deildu 3-8 sæti. Björn varð efstur Víkinga.

Gunnar Erik Guðmundsson (Betra Líf) varð efstur pilta 12. ára og yngri og Iðunn Helgadóttir efst stúlkna.

Veronika Steinunn Magnúsdóttir (Dýrabær) varð efst kvenna og Einar Dagur Brynjarsson (Sensa) efstur Víkinga 12. ára og yngri. Alls tóku 38 keppendur þátt.
Skákstjóri var Kristján Örn Elíasson og Róbert Lagermann (Le Kock) aðstoðaði. Telfdar voru sjö umferðir með 4 2 umhugsunartíma.
Þórir Benediktsson tók auk þess myndir. Þær má finna hér.

















