Ólympíuskákmótið hófst í dag í Batumi í Georgíu. Setningarathöfnin í gærkvöldi var stórglæsileg. Mótið sjálft fór ekki jafn glæsilega af stað en einhverjar tafir og skipulagsleysi voru í upphafi umferðar. Einhverjar skákir fóru af stað á undan öðrum og mikill umgangur þegar þær voru hafnar. Síðan voru önnur lið ekki komin þar sem öryggisleit tók of langan tíma. Aðstæður eru engu að síður mjög góðar og þetta verður glæsilegt mót þegar meira flæði er komið á skipulagið.

Verkefni dagsins reyndist ekki erfitt fyrir íslensku liðin. Í raun þarf það ekki að koma á óvart þar sem ekkert lið sem var lægra í styrkleikaröðinni náði að stríða stigahærri andstæðingi sínum. Örfá einstaklingsúrslit komu á óvart en ekkert lið bæði í opna flokknum og kvennaflokknum missti meira en 1 vinning gegn stigalægra liðinu.

Fyrsta skákin til að klárast var aðeins 9 leikir. Óreyndur keppandi frá Gambíu (bið þá afsökunar að hafa kallast þá Gabon á Facebook!) tapaði þá full mikið af liði og lét máta sig.

Skákin kristallar þó að mörgu leiti ólympíuandann „Gens Una Sumus“.  Skákin er nefnilega fyrir alla, ekki bara elítuna og það er það sem er svo fallegt við Ólympíuskákmótið.

En yfir í okkar lið. Í opna flokknum mættum við Palestínu. Nokkuð kom á óvart að varamaður þeirra sem þó er með yfir 2200 stig hvíldi í fyrstu umferð. Mögulega ætlar hann að reyna við borðaverðlaun og vill því ekki taka á sig fyrirsjáanlegt tap í fyrstu umferð. Palestínumennirnir voru allir á stigabilnu 1900-2000.

Hannes var fyrstur að klára.

Hér gat Hannes unnið drottningu með 32.Hf7+ og svo Rg5+ í kjölfarið. Hannes sá þetta í rauninni en hafði smá áhyggjur af því að Palestínumaðurinn gæti náð ákveðinni fortressu og þar sem Palestínumenn hafa gríðarlega reynslu af því að verjast liði undir lagði Hannes ekki í það.

Palestínumaðurinn hlýtur að hafa áttað sig á því að hann yrði að verjast liði undir því eftir 32.Hf3 Bg7 33.a4 lék hann 33…Hf8 og fórnaði skiptamun. Það reyndist þó vera of seint og Hannes vann góðan sigur.

Guðmundur var næstur að klára gegn Allam.

Allam var að enda við að leika af sér í stöðu sem var töluvert þægilegri á hvítan með 28..f6?

Guðmundur lét ekki bjóða sér það tvisvar og lék 29.g4! og vinnur g6 peðið. Eftirleikurinn reyndist auðveldur.

Mohamed Allam réð ekki við slagkraft Guðmundar í dag

Síðustu tvær skákirnar voru svo hjá Helga Áss og Héðni. Héðinn gaf andstæðingi sínum kost á að þráleika tvisvar til að stríða honum aðeins en fór svo strax úr þráleiknum og fékk betra endatafl sem hann hafði fulla stjórn á. Helgi Áss tefldi af sama skapi vel og var ekki í teljandi vandræðum með sinn andstæðing.

Skákir karlanna eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)

Helgi liðsstjóri var áberandi reffilegur í dag og bar af í klæðnaði!

Kvennaflokkur:

Stelpurnar unnu nokkuð auðveldan sigur í dag. Sigurlaug var fyrst að klára, vann með svörtu í 20 leikjum eftir slæm mistök andstæðingsins. Á fyrsta borði vann Guðlaug einnig auðveldan sigur eftir að hafa yfirspilað andstæðing sinn á kóngsvængnum.

Staða Jóhönnu var í járnum fram að 23. leik hvíts en þá lék Jóhanna 23.h5 sem opnaði ýmsa möguleika á kóngsvængnum

Í framhaldinu opnaðist staðan upp á gátt og andstæðingur Jóhönnu réð ekki neitt við neitt. Snaggarlegur sigur hjá Jóhönnu.

Síðasta viðureignin til þess að ljúka var frumraun Nansýjar á öðru borði. Þrátt fyrir að vera stigalaus tefldi andstæðingur Nansýjar af mikilli skynsemi og varkárni. Í raun tefldi hún ekki vel og lék skrýtnum leikjum en lék aldrei neinu af sér. Staðan var í jafnvægi allt þar til eftir tímamörkin þegar að hún fór skyndilega að hugsa mjög lengi. Ljóst var að Bahamas stúlkan var algjörlega planlaus og vissi ekkert hvað hún ætti að gera. Á endaum féll hún hreinlega á tíma og misskildi eitthvað tímamörkin. Nansý var komin með pressu á kóngsvægnum sem var erfitt fyrir óreyndan andstæðing hennar að eiga við og því fór sem fór.

Nansý vann góðan sigur í fraumran sinni á Ólympíumóti.
Liðsstjóri Bahamas reyndi að stappa stálinu í sína liðsmenn. Þrátt fyrir hversdagsleg útlit og sumpart viðvaningslega nálgun reyndist hér á ferðinni bandaríski stórmeistarinn Renier González!

Skákir úr kvennaflokki eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)

 

2. umferð

Verkefni morgundagsins er töluvert erfiðara. Stelpurnar mæta Hollendingum sem eru númer 16 í styrkleikaröð mótsins. Virkilega verðugt verkefni þar á ferðinni.

Karlarnir mæta Lettum sem eru númer 31 í styrkleikaröð. Verðugt verkefni þar á ferð. Áframhaldandi umfjöllun verður hér á Skak.is

 

Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Mótið á chess-results 1.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Myndir frá 1. umferð: Myndapakki 1 | Myndapakki 2

Hlaðvarp 1. umferð: Ólympíuhlaðvarpið

 

Frá Batumi,

Ingvar Þór Jóhannesson / Björn Ívar Karlsson

- Auglýsing -