Íslensku liðin unnu bæði sannfærandi 4-0 sigra í gær og mæta bæði liðin andstæðingum ofarlega í stigaröðinni.
Ísland mætir Lettum í opna flokknum en þeir eru númer 31 í styrkleikaröðinni. Héðinn hefur hvítt á fyrsta borði og Helgi Áss Grétarsson hvílir í dag.
Í kvennaflokki mætum við Hollendingum sem eru númer 16 í styrkleikaröð og Lenka Ptacnikova hefur hvítt á fyrsta borði en Sigurlaug Friðþjófsdóttir hvílir að þessu sinni.
Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Mótið á chess-results 1.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
- Auglýsing -