Íslensku liðin mæta bæði til leiks í 6. umferðina með þrjá sigra og tvö töp á bakinu. Allir ættu að hafa hlaðið batteríin vel á frídeginum í gær og tilbúnir í slaginn í dag.
Í opnum flokki mætum við liði Kazakhstan. Kazakar eru stigahærri en við á öllum borðum og á svipuðu reyki or norska sveitin sem við töpuðum svo illa fyrir. Liðsmenn eru hinsvegar staðráðnir í að sýna að þar áttum við einfaldlega mjög slæman dag og munum sýna það og sanna gegn Kazökum! Helgi Áss Grétarsson hvílir í opna flokknum.

Slóvenska sveitin er einnig sterkari en sú íslenska í kvennaflokki og þar verður róðurinn mjög erfiður. Lenka Ptacnikova 1. borðs maður okkar Íslendinga þarf að hvíla í umferðinni í dag útaf óhappi þar sem hún slasiðst á löpp en ætti að vera komin aftur til leiks í næstu umferð.

Azerbaijan, Tékkland, Pólland og Úkraína leiða mótið í opna flokknum en bandarísku stelpurnar eru nokkuð óvænt einar í efsta sæti í kvennaflokki
Beinar útsendingar á Skak.is: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Mótið á chess-results 5.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur



















